Henrik Linnet

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2005 kl. 09:15 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2005 kl. 09:15 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Henrik Linnet, héraðslæknir 1960 til 1964. Fæddur á Sauðárkróki 12. júni 1919. Sonur Kristjáns Linnet sýslumanns þar og síðar bæjarfógeta í Vestmannaeyjum, og konu hans Jóhönnu Júlíusdóttur bónda í Miðjanesi í Reykhólasveit Ólafssonar. Varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1939 og cand. med. frá Háskóla Íslands 1947. Vann á sjúkrahúsum heima og erlendis. Skipaður héraðslæknir í Bolungarvíkurhéraði 1949, Hvolshéraði 1956 og héraðslæknir í Vestmannaeyjum og gendi því starfi til 1964, en gerðist þá starfandi læknir í Reykjavík og jafnframt aðstoðarlæknir við röntgendeild Landspítalans. Kona hans er Svana hjúkrunarkona Vernharðsdóttir bónda í Hvítanesi í SKötufirði Einarssonar og eiga þau fjögur börn.