Helgi Ólafsson (skákmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. janúar 2013 kl. 10:58 eftir Gauti (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. janúar 2013 kl. 10:58 eftir Gauti (spjall | framlög) (Viðbót með NM)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Helgi Ólafsson


Helgi Ólafsson teflir í Höllinni.

Helgi Ólafsson er fæddur 15. ágúst 1956 í Vestmannaeyjum. Hann er einn sigursælasti skákmaður Íslands. Hann hefur orðið Íslandsmeistari í skák sex sinnum og er stórmeistari í skák.

Helgi var skákmeistari Vestmannaeyja tvisvar, árin 1972-73. Er félagi í Taflfélag Vestmannaeyja og hefur keppt fyrir félagið um árabil og kemur oft til Eyja til þjálfunar á yngri skákmönnum. Helgi fylgdi Íslandsmeisturum í skáksveit barnaskóla Vestmannaeyja á Norðurlandamótið á Örsundsbro í Svíþjóð 2007, en þar lenti sveitin í 2 sæti.