Heimaslóð:Um Heimaslóð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. maí 2006 kl. 14:00 eftir Zindri (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. maí 2006 kl. 14:00 eftir Zindri (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Heimaslóð er sögu-, menningar- og náttúrufarsvefur um Vestmannaeyjar sem rekinn er af Vestmannaeyjabæ. Efni vefsins kemur frá fjölmörgum aðilum. Vefurinn er í stöðugri endurnýjun og á hverjum degi eru greinar uppfærðar eða skrifaðar. Fjölmargir aðilar standa að uppbyggingu vefsins. Þér er boðið að vafra um vefinn, njóta þeirra upplýsinga sem þar er að finna eða að taka þátt í því skemmtilega verkefni að gera vefinn betri og koma að uppbyggingu hans.

Menntamálaráðuneytið í samstarfi við iðnaðarráðuneytið hefur úthlutað styrk til þessa verkefnis til skráningar og miðlunar stafræns menningarefnis á landsbyggðinni. Verkefnið er hluti af Opinni menningu.

Atvinnuleysistryggingasjóður hefur veitt styrki í verkefnið og Nýsköpunarsjóður Námsmanna kom að verkefninu. Sparisjóður Vestmannaeyja hefur veitt styrk í verkefnið.

Hugbúnaður

Heimaslóð keyrir á breyttri útgáfu Mediawiki hugbúnaðarins, sem er frjáls hugbúnaður, gefinn út undir skilmálum GNU General Public Licence. Breytingarnar sem hafa verið gerðar eru meðal annars til þess að uppfylla Dublin Core lýsigagnastaðalinn.

Mynd:Vcss.png Mynd:Vxhtml10.png