Haförn VE-23

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Haförn VE-23 var smíðaður í Frederikssund í Danmörku 1917 og var 36 brúttólestir að stærð. Hann var elsta skip eyja flotans og jafnframt næstelsta skip íslenska fiskiskipaflotans á þeim tíma. Skipið var keypt til Vestmannaeyja frá danmörku árið 1940 af Pétri Andersen útgerðarmanni sem var í daglegu tali var kallaður Danski-Pétur. Pétur átti bátinn ásamt sonum sínum og gaf honum nafnið Meta VE. Þann 36. Október 1959 keyptu bræðurnir Ingólfur og Sveinn Matthíassynir bátinn og gáfu honum nafnið Haförn VE-23. Þeir bræður réru alla tíð sjálfir á bátnum, Ingólfur skipstjóri og Sveinn stýrimaður og kokkur. Haförninn hefur í þau 25 ár sem þeir bræður gerðu hann út, verið mikil happafleyta, engin slys né óhöpp höfðu sent bátinn né áhöfn hans. Haförn VE-23 var því kvaddur með söknuði og virðingu góðviðrisdaginn 18. nóvember 1984. Haförn VE 23 hafði verið dæmdur í úreldingu og þetta 67 ára gamla happa- og gæfu skip fékk virðulega ´´útför’’. Af þiljum aflaskipsins Þórunnar Sveinsdóttir VE - 401 sem hjálpaði Haferninum síðustu ferðina út úr höfninni, fylgdust eigendur bátsins, aðstandendur þeirra og vinafólk, með söknuði og trega þegar skipið smám saman seig í sjó og hvarf loks alveg í undirdjúpin. Langri og farsælli útgerðarsögu skipsins var þar með lokið, það hafði siglt um atlantshafið í 67 ár.Ingólfur Matthíasson sagði í samtali að sér þætti mikil eftirsjá í þessum bát. „Þetta hefur verið mikil happafleyta og öll þessi 25 ár sem við bræður höfum gert hann út hafa engin slys eða óhöpp hent bátinn né áhöfn hans .“ Aðspurður um það, hvernig honum hefði verið innanbrjósts þegar hann horfði á eftir bátnum í hafið eftir þessi löngu samskipti, svaraði Ingólfur: „Ég fylltist miklum söknuði og eftirsjá. Þó get ég varla verið annað en ánægður með að báturinn fékk þessi endalok en ekki einhver önnur óvirðulegri eftir 67 ára þjónustu og farsælt 25 ára samstarf sem hefur reynst að öllu leyti vel og skilað góðum afla og afkomu. Þetta var afbragðsbátur og alla tíð vel búinn tækjum. Ég hefði óhræddur treyst bátnum til að þjóna okkur í 20 ár til viðbótar þeim 67 sem báturinn hefur að baki, en eftir 54 ár til sjós fannst mér tímabært að hætta sjósókn og fara að gera eitthvað annað. Við bræður erum orðnir fullorðnir og tókum þá ákvörðun að hætta útgerð.“ „Ég hefi hoppað úr bátnum upp á bryggjuna“, sagði Ingólfur Matthíasson skipstjóri að lokum - fengsæll og farsæll formaður í 25 ár, nú kominn í land eftir rúmlega hálfrar aldar sjósókn.