Gullrót

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júlí 2006 kl. 14:20 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júlí 2006 kl. 14:20 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Félagið Gullrót var stofnað af félögunum Óðni Hilmissyni og Óskari Kjartanssyni til að halda utan um allar þær unglingahljómsveitir sem stofnaðar hafa verið í Vestmannaeyjum og hjálpa þeim að koma undir sig fótum. Einnig hefur Gullrót staðið fyrir fjölda mörgum tónleikum og sér um að halda úti Fiskiðjunni sem æfingahúsnæði fyrir þessar hljómsveitir.