Guðmundur Magnússon (Goðalandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. október 2013 kl. 00:26 eftir Glumur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. október 2013 kl. 00:26 eftir Glumur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Karl Guðmundsson

Guðmundur Magnússon, f. 05.09.1877 - d. 21.09.1959 var sonur Magnúsar Guðmundssonar (1852 - 1892) bónda í Hrauk í Vestur Landeyjum og konu hans Bjarghildar Guðnadóttur (1855 - 1941). Guðmundur tók sveinspróf í trésmíði á Eyrarbakka árið 1899 og stundaði um hríð trésmíðanám í Kaupmannahöfn þar sem hann kynntist verkalýðshreyfingunni og jafnaðarstefnunni, sem hann aðhylltist ávallt síðan. Árið 1902 kemur Guðmundur heim til Íslands og sest að í Reykjavík, en flytur með konu sinni til Vestmannaeyja árið 1908. Þar var hann byggingarmeistari og útvegisbóndi á Dvergasteini fram til 1930, er hann byggir Goðaland þar sem hann rak trésmíðaverkstæði til dauðadags.