Guðlaugur Gíslason (alþingismaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2005 kl. 16:24 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2005 kl. 16:24 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðlaugur Gíslason, bæjarstjóri og alþingismaður.

Guðlaugur Gíslason, bæjarstjóri, var alþingismaður Vestmannaeyinga frá 1959 til 1978. Hann var fyrst kosinn á Alþing í vorkosningunum 1959 þegar Vestmannaeyjar voru síðast sérstakt kjördæmi og síðan af lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi. Guðlaugur fæddist á Stafnesi í Miðneshreppi þann 1. ágúst á herrans árinu 1908 og lést þann 28. mars 1992. Foreldrar hans eru Gísli Gerimundarsson (f. 19. janúar 1874, d. 9. júlí 1919) útgvegisbóndi og Þórunn Jakobína Hafliðadóttir (Fædd 30. janúar 1875, d. 27. maí 1965). Guðlaugur kvæntist Sigurlaugu (f. 28. janúar 1911) sem er dóttir Jóns Hinrikssonar kaupfélagsstjóra í Vestmannaeyjum og Ingibjargar Theodórsdóttur Mathiesen. Guðlaugur stundaði nám í Köbmandsskolen í Kaupmannahöfn 1930 til 1931 og lauk þaðan prófi. Var kaupmaður í Vestmannaeyjum frá 1932 til 1934 og síðan aftur frá 1948 til 1954. Var ráðinn bæjargjaldkeri Vestmannaeyja árið 1934 til 1937 og síðan hafnargjaldkeri 1937 til 1938. Ráðinn sem kaupfélagsstjóri Neytendafélags Vestmannaeyja 1938 til 1942. Var framkvæmdastjóri útgerðarfélaganna Sæfells h. f. og Fells h. f. frá 1942 til 1948. Var bæjarstjóri í Vestmannaeyjum 1954 til 1966. Átti sæti í bæjarstjórn Vestmannaeyja 1938 til 1946 og 1950 til 1966. Var vararæðismaður Svíþjóðar 1944 til 1975. Guðlaugur var í bankaráði Útvegsbanka Íslands 1961 til 1980 og var skipaður í Fiskveiðilaganefnd árið 1971. Var síðan skipaður í milliþinganefnd um samgöngumál Vestmannaeyinga árið 1972. Var svo kosinn 1973 í stjórn Viðlagasjóðs og skipaður aftur 1975 í Fiskveiðilaganefnd.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár, II. bindi. Reykjavík, Vestmannaeyjabær, 1991.