Guðjón Jónsson (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 11:45 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2006 kl. 11:45 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Guðjón Jónsson var síðasti ábúandi á jörðinni Oddsstöðum. Hann var tvíkvæntur, fyrri kona hans var Guðlaug Pétursdóttir en seinni kona hans var Guðrún Grímsdóttir. Frá þeim er mikill ættbogi, Oddsstaðaættin, og fjölmargir af þeirri ætt í Eyjum sem og á fastalandinu. Auk bústarfa stundaði Guðjón á Oddsstöðum sjó, var formaður en kunnastur er hann líklega fyrir smíðar sínar, aðallega líkkistusmíðar, en hann smíðaði um árabil líkkistur fyrir flesta þá sem létust í Eyjum. Hann var einnig orðheppinn og kunnur fyrir skjót og eftirminnileg tilsvör og margar sögur tilgreindar af slíku:

  • Páll Kolka var lengi héraðslæknir í Eyjum en flutti héðan. Einhverju sinni eftir það kom hann í heimsókn til Eyja og hitti þá m.a. Guðjón á Oddsstöðum. Spurði Kolka hann hvernig atvinnan, þ.e. líkkistusmíðin, gengi. Og þá svaraði Guðjón: „Ég skal segja þér, Kolka minn, að þetta var aldeilis prýðilegt meðan þú varst hér en hreint ekkert síðan.“
  • Einhverju sinni var Guðjón spurður hvort mannslát hefðu verið tíð í Eyjum að undanförnu. Hann svaraði á þessa leið: „Það dó hér einn ágætismaður og tvær óláns kellíngar.“ Kunnugir sögðu að Guðjón hefði verið fenginn til að smíða utan um manninn en kisturnar fyrir kerlingarnar hefðu verið pantaðar úr Reykjavík.