Guðjón Jónsson (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2006 kl. 09:45 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2006 kl. 09:45 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðjón.

Guðjón Jónsson fæddist 13. desember 1913 á Gunnlaugsstöðum í Stafholtstungum í Borgarfirði. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 30. mars 2001. Foreldrar hans voru Jón Þórólfur Jónsson, f. 2.6. 1870, d. 9.3. 1959, bóndi á Gunnlaugsstöðum, og Jófríður Ásmundsdóttir, f. 29.4. 1881, d. 16.10. 1977. Systkini Guðjóns voru: Friðjón, f. 6.5. 1903, látinn; Ásbjörg Guðný, f. 30.11. 1904; Oddur Halldór, f. 17.1. 1906, látinn; Guðmundur, f. 1.1. 1908, látinn; Kristinn, f. 30.5. 1909, látinn; Lára, f. 21.8. 1911, látin: Leifur, f. 31.10. 1912, látinn; Sigrún, f. 10.9. 1915; Fanney, f. 1.10. 1916; Guðmundur Óskar, f. 25.1. 1918, látinn; Magnús, f. 29.7. 1919, látinn; Svava, f. 31.1. 1921; Ágústa, f. 8.8. 1922; Gunnlaugur, f. 30.7. 1924; og Svanlaug, f. 15.1. 1928.

Guðjón kvæntist 10.12. 1938 eftirlifandi eiginkonu sinni, Helgu Þ. Árnadóttur, f. 15.5. 1918. Foreldrar hennar voru Árni Oddsson og Sigurbjörg Sigurðardóttir frá Burstafelli í Vestmannaeyjum. Börn Guðjóns og Helgu eru: 1) Árnný Sigurbjörg, f. 19.9. 1940, starfsmaður Skráningarstofunnar í Reykjavík, var gift Sigurði Pétri Oddssyni skipstjóra, f. 18.5. 1936, d. 14.8. 1968, þau eignuðust þrjá syni, Guðjón, Magnús Inga, f. 5.9. 1961, d. 23.7. 1987, og Odd. Seinni maður Árnnýjar er Edmund Bellersen rafmagnsverkfræðingur. 2) Oddfríður Jóna, skólaliði í Vestmannaeyjum, f. 22.5. 1942, gift Ágústi Pálmari Óskarssyni vélstjóra og eiga þau þrjár dætur, Helgu, Rut og Fríðu Jónu. 3) Emil Þór, bílstjóri í Reykjavík, f. 15.2. 1944, kvæntur Stellu S. Sigurðardóttur og eiga þau tvö börn, Guðjón Þór og Helgu Dagmar, auk þess sem Stella átti son fyrir, Sigurð Harðarson. 4) Guðmundur Helgi, tjónafulltrúi í Reykjavík, f. 5.3. 1947, kvæntur Ingu Dóru Þorsteinsdóttur sjúkraliða og eiga þau þrjár dætur, Ingigerði, Guðnýju Helgu og Kristínu Hrönn. 5) Ásbjörn, bifvélavirki á Eskifirði, f. 28.1. 1949, kvæntur Guðrúnu V. Friðriksdóttur og eiga þau þrjár dætur, Elísabetu Ólöfu, Eydísi og Andreu. 6) Elín Ebba, starfsmaður Sjálfsbjargarheimilisins í Reykjavík, f. 20.10. 1952, var gift Guðjóni Inga Ólafssyni og eiga þau þrjú börn, Sigurbjörgu Huldu, Hjalta og Guðjón Helga, sambýlismaður Elínar Ebbu er Kristján Albertsson málarameistari. 7) Lárus Jóhann, málarameistari á Akranesi, f. 6.2. 1959, var kvæntur Höllu Böðvarsdóttur og eiga þau þrjár dætur, Lindu Björk Svövu Björk og Birnu Björk. Sambýliskona Lárusar er Margrét Ósk Ragnarsdóttir og eiga þau tvö börn, Ragnar Má og Unu Láru. Afkomendur Guðjóns og Helgu eru 58.

Guðjón gekk í barnaskóla árin 1923-26 en þá var kennt tvo til þrjá mánuði yfir vetrartímann. Auk þess stundaði hann nám við Héraðsskólann í Reykholti 1934-35. Hann stundaði landbúnaðarstörf til 1939, hélt sjálfur búskap á Högnastöðum í Þverárhlíð 1939-41, var bústjóri í Innstavogi við Akranes 1941-46 en flutti þá til Vestmannaeyja og var þar bústjóri í Dölum fyrir Vestmannaeyjabæ. Árið 1962 hóf hann verkamannastörf á vegum Vestmannaeyjakaupstaðar og starfaði jafnframt við Fiskimjölsverksmiðjuna. Er gosið hófst í Heimaey 1973 flutti Guðjón að Esjuvöllum 5 á Akranesi og starfaði hjá Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness til 1989.