Georg Gíslason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. júlí 2007 kl. 13:39 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. júlí 2007 kl. 13:39 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Georg Gíslason var fæddur þann 24. ágúst 1895 og lést 27. febrúar 1955. Hann bjó lengst af ævi sinnar í Stakkagerði. Hann var sonur Jóhönnu Árnadóttur Diðrikssonar hreppstjóra og Gísla Lárussonar frá Stakkagerði.

Kona Georgs var Guðfinna Sigríður Kristjánsdóttir. Á meðal barna þeirra var Kristján.

Árið 1917 hóf Georg verslunarrekstur og verslun sína rak hann þangað til hann lést, þann 27. febrúar 1955. Hann var einn af stofnendum Íþróttafélagsins Þórs og var formaður þess frá stofnun þess til ársins 1932 með nokkrum stuttum hléum, eða alls 17 ár. Hann var sjálfur mikill knattspyrnumaður og keppti m.a. í fyrsta Íslandsmeistaramótinu í knattspyrnu fyrir hönd Knattspyrnufélags Vestmannaeyja árið 1912. Hann stundaði einnig glímu og varð Glímumeistari Vestmannaeyja árin 1920, 1922 og 1923.

Þegar Golfklúbbur Vestmannaeyja var stofnaður árið 1937 var hann þar í forsvari fyrir hópi áhugamanna um þá íþrótt, og varð hann Íslandsmeistari í 1. flokki þar.


Heimildir