Geir Guðmundsson (Geirlandi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. febrúar 2013 kl. 01:10 eftir Gauti (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. febrúar 2013 kl. 01:10 eftir Gauti (spjall | framlög) (Tafl)
Fara í flakk Fara í leit
Geir Guðmundsson.


Geir Guðmundsson fæddist 22. júní 1873 og lést 14. mars 1952. Kona hans var Guðrún Pétursdóttir, f. 1883 d. 1923. Þau bjuggu í Geirlandi. Hann reisti húsið árið 1908 og nefndi það eftir sjálfum sér. Geir sagði að þegar að hann myndi byggja sér hús, þá yrði hátt til lofts þar. Mjög hátt er til lofts í stofunum tveimur á annarri hæð Geirlands, en það er um 3.3 metrar.

Geir var einn af fyrstu meðlimum í hinu nýstofnaða Taflfélagi Vestmannaeyja árið 1926.


Hann var einn af fimm eigendum að Unni VE-80.