„Garðshorn við Brimhólabraut“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Breytti texta og jók við hann)
Ekkert breytingarágrip
Lína 2: Lína 2:


[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Brimhólabraut]]

Útgáfa síðunnar 26. júní 2007 kl. 11:25

Húsið Garðshorn við Brimhólabraut 14 var byggt árið 1946 af Sveini Matthíassyni og Maríu Pétursdóttur. Húsinu var gefið nafn um 1980. Það heitir ekki Garðshorn eftir húsinu við Heimagötu eins og margir halda. María Pétursdóttir var ættuð að austan og hét æskuheimili hennar Garðshorn. Þar sem annað hús var til í Eyjum með þessu nafni fyrir gos, gat hún að sjálfsögðu ekki gefið sínu húsi það nafn. En eftir gos, þegar Garðshorn við Heimagötu var horfið, fór María þess á leit við systurnar frá Garðshorni við Heimagötu að hún fengi að gefa húsinu við Brimhólabraut þetta nafn og var það leyfi auðfengið. Í húsinu bjuggu árið 2006 María S. Sigurbjörnsdóttir, Adolf Þórsson og fjölskylda.