Garðar Sigurðsson alþingismaður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 13:23 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 13:23 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Garðar Sigurðsson, alþingismaður.

F. í Reykjavík 20. nóv. 1933, d. 19. mars 2004. For.: Jóhann Sigurður Hjálmarsson (f. 17. okt. 1900, d. 29. júlí 1981) bifreiðasmiður og 1. k. h. Klara Tryggvadóttir (f. 1. okt. 1906). K. 1. (7. júní 1955) Kristrún Hólmfríður Jónsdóttir (f. 11. maí 1934) húsmóðir. Þau skildu. For.: Jón Sveinsson og k. h. Bjarney Einarsdóttir. K. 2. (27. okt. 1962) Bergþóra Óskarsdóttir (f. 10. maí 1943) húsmóðir. For.: Óskar Sigfinnsson og k. h. Þóra Guðný Þórðardóttir. Börn Garðars og Kristrúnar: Bjarney Kolbrún (1955), Tryggvi (1958). Dætur Garðars og Bergþóru: Sigríður (1962), Gerður Klara (1969), Guðný Ósk (1976), Edda (1979).

Stúdentspróf MR 1953. Lagði stund á verkfræði við Háskóla Íslands 1953— 1955. Stýrimannapróf í Reykjavík (utan skóla) 1962.

Kennari við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað 1957—1960 og jafnframt við Iðnskólann þar 1958—1960. Kennari við Gagnfræðaskólann í Vestmannaeyjum 1961—1962 og 1963—1973, settur skólastjóri 1969—1970. Stundaði sjómennsku með námi og kennslu, að aðalstarfi 1955—1957, stýrimaður á fiskiskipum á sumrum frá 1962. Starfsmaður Veiðieftirlits sjávarútvegsráðuneytisins 1987— 1990. Starfsmaður Landsbanka Íslands síðan 1990. Bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum 1966—1978. Í flugráði 1972—1980. Í stjórn Viðlagasjóðs 1973—1975. Í bankaráði Útvegsbanka Íslands 1981—1987. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1974, 1975, 1981 og 1982. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1972 og 1979—1983. Fulltrúi á þingi Evrópuráðsins 1983—1987.

Alþm. Suðurl. 1971—1987 (Alþb.). 2. varaforseti Nd. 1979—1983.