„Fyrsti áratugurinn“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:naust1907.jpg|thumb|Nausthamar árið 1907. Smelltu á myndina fyrir stærri mynd og nánari lýsingu]]
Árið 1904 var í fyrsta sinn sett vél í bát í Vestmannaeyjum. Hann hlaut nafnið Eros. Sú tilraun uppfyllti ekki væntingar Vestmannaeyinga því að báturinn gekk ekki eins hratt og búist hafði verið og vélin var ógangviss. Ári síðar kom m/b Unnur til Vestmannaeyja og skömmu síðar m/b Knörr. Þessir tveir bátar hófu veiðar á næstu vetrarvertíð og gekk útgerð Unnar mjög vel og var þar með búið að leggja grunn að vélbátaútgerð í Eyjum.

Síðan fjölgaði vélbátum afar ört enda var mikill hagnaður af rekstri þeirra.
Síðan fjölgaði vélbátum afar ört enda var mikill hagnaður af rekstri þeirra.
Lína 10: Lína 13:
Matthías reisti svo viðgerðarverkstæðið Jaðar og notaði það í allt sem varðaði viðgerðir og til að auka þekkingu vélstjóra .
Matthías reisti svo viðgerðarverkstæðið Jaðar og notaði það í allt sem varðaði viðgerðir og til að auka þekkingu vélstjóra .
Verður að telja þetta framtak Matthíasar merkilegan þátt í sögu útgerðar í Vestmannaeyjum, og hefur það án efa dregið verulega úr sjóslysum við Eyjar sem því miður voru allt of mörg gegnum árin sem fyrst og fremst stafaði af hinni geysilega hörðu sjósókn á litlum bátum fyrstu áratugi vélbátanna.

Frá athafnarlífi á Edinborgarbryggjunni á árunum 1907-1913.  Hinir fyrstu vélbátar liggja við bryggjuna og svo skögtbátar og vélbátar liggja við ból á höfninni.  Á myndinni má greina verksmiðjugrunn hins franska ræðismanns í Reykjavík, Brilluoins.
  Á Nausthamrinum stendur skúr sem var m.a. notaður til að geyma í ýmislegt sem varðaði skipaafgreiðslu Gísla J. Johnsens.  Hrognatunnur  liggja ofarlega við jaðar bryggjunnar.
Enn eru engin stýrihús á vélbátunum

Útgáfa síðunnar 10. júní 2005 kl. 14:29

Nausthamar árið 1907. Smelltu á myndina fyrir stærri mynd og nánari lýsingu

Árið 1904 var í fyrsta sinn sett vél í bát í Vestmannaeyjum. Hann hlaut nafnið Eros. Sú tilraun uppfyllti ekki væntingar Vestmannaeyinga því að báturinn gekk ekki eins hratt og búist hafði verið og vélin var ógangviss. Ári síðar kom m/b Unnur til Vestmannaeyja og skömmu síðar m/b Knörr. Þessir tveir bátar hófu veiðar á næstu vetrarvertíð og gekk útgerð Unnar mjög vel og var þar með búið að leggja grunn að vélbátaútgerð í Eyjum. Síðan fjölgaði vélbátum afar ört enda var mikill hagnaður af rekstri þeirra.

Aukin atvinna - Vélsmiðja og viðgerðarþjónusta bátaflotans

Eins og líkum lætur olli hin öra uppbygging og vélvæðing skipastóls Eyjamanna ýmsum vandkvæðum og erfiðleikum í sambandi við gæslu og meðhöndlun á vélum bátaflotans fyrstu árin. Enginn lærður vélstjóri var í Eyjum. Yfirleitt voru þeir handlagnustu ráðnir á bátana þó að þeir höfðu vart séð slíka gripi áður, hvað þá að þeir hafi fengið nokkra kennslu í meðferð þeirra. Þetta gat náttúrulega ekki gengið þar sem áhafnirnar átti líf sitt undir að vélarnar stöðvuðust ekki ef óveður skylli á, sem var ekki óalgengt.

Matthías Finnbogason var þá nýfluttur til Eyja, hann var bæði tré-og járnsmiður, og fór hann til Kaupmannahafnar fyrir milligöngu Gísla til dvalar hjá Dan-mótorverksmiðjunni, þar sem Gísli var umboðsmaður hjá, til að læra þar meðferð véla. Þar aflaði Matthías sér góðrar þekkingar og tókst honum svo að námi loknu að afla sér fjárhagslegum stuðning erlendis frá til kaupa á tækjum og verkfærum til þess að geta stofnað viðgerðarverkstæði heima og fékk hann þar einnig lán frá sýslunefndinni til frekari kaupa og sýndi þetta hve mönnum þótti mikilvægt að einhver gæti séð um viðgerð á vélum bátanna.

Matthías reisti svo viðgerðarverkstæðið Jaðar og notaði það í allt sem varðaði viðgerðir og til að auka þekkingu vélstjóra . Verður að telja þetta framtak Matthíasar merkilegan þátt í sögu útgerðar í Vestmannaeyjum, og hefur það án efa dregið verulega úr sjóslysum við Eyjar sem því miður voru allt of mörg gegnum árin sem fyrst og fremst stafaði af hinni geysilega hörðu sjósókn á litlum bátum fyrstu áratugi vélbátanna.