Erna Þórsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Erna Þórsdóttir húsfreyja, gistiheimilisrekandi fæddist 28. júlí 1963.
Foreldrar hennar Þór Ragnarsson veitingamaður, f. 17. apríl 1943, og Guðlaug Brynja Halldórsdóttir, f. 25. nóvember 1944. Fósturforeldrar Ernu voru móðurforeldrar hennar, Halldór Jónsson sjómaður, útgerðarmaður, f. 28. ágúst 1919, d. 17. maí 1998, og Anna Guðrún Erlendsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, f. 11. júlí 1924, d. 11. febrúar 1998.

Erna var með móðurforeldrum sínum í æsku, við Boðaslóð 16 og við Hásteinsveg 60, í Hásteinsblokkinni.
Hún varð sjúkraliði, lauk námi í Eyjum 2008.
Erna vann á Sjúkrahúsinu í Eyjum og í Hraunbúðum.
Þau Halldór reka nú gistiheimili á Ofanleitissvæðinu og hún vinnur við það.
Þau Halldór giftu sig 1985, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu við Áshamar og Foldahraun, byggðu húsið við Kirkjubæjarbraut 15 og búa þar.

I. Maður Ernu, (26. maí 1985), er Halldór Hjörleifsson húsasmiður, byggingaiðnfræðingur, f. 9. nóvember 1960.
Börn þeirra:
1. Hafþór Halldórsson rafeindavirki, f. 20. ágúst 1983. Fyrrum sambúðarkona Eva María Jónsdóttir. Sambúðarkona Linda Rós Sigurðardóttir.
2. Halldóra Björk Halldórsdóttir leikskólakennari, f. 19. nóvember 1986. Maður hennar Björn Sigþór Skúlason.
3. Brynja Rut Halldórsdóttir húsfreyja, sjávarútvegs- og viðskiptafræðingur, f. 22. febrúar 1993. Fyrrum sambúðarmaður Tómas Ísleifsson. Maður hennar Ríkarð Magnússon.
4. Ingi Þór Halldórsson húsasmiður, f. 10. júlí 1995. Sambúðarkona hans Margrét Ástrós Gunnarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.