Einar Guttormsson (læknir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:13 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:13 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Einar Guttormsson var sjúkrahúslæknir 1934 til 1973. Hann er fæddur 15. desember 1901 að Arnarheiðarstöðum í Fljótsdal. Voru foreldrar hans Guttormur Einarsson bóndi þar og kona hans Oddbjörg Sigfúsdóttir bónda í Meðalnesi í Fellum Oddsonar. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1926 og lauk læknisprófi frá Háskóla Íslands 1932. Dvaldi erlendis við frekara nám 1932 til 1933. Kom til Vestmannaeyja fyrri hluta árs 1934 og stundaði almennar lækningar og var jafnframt ráðinn sjúkrahúslæknir þar 16. október sama ár og gendi hann því starfi þar til í ársbyrjun 1973, er hann eins og aðrir Vestmannaeyingar varð að flytja úr bænum vegna eldgossins á Heimaey. Hann var allan tímann einnig heimilislæknir mikils fjölda Eyjaskeggja. Tók mikinn þátt í félagsmálum í Eyjum. Átti sæti í bæjarstórn 1946 til 1950 og var gerður heiðursborgari Vestmannaeyjakaupstaðar og létu bæjarbúar gera af honum brjóstlíkan á 25 ára starfsafmæli hans, og er það í hinu nýja sjúkrahúsi staðarins. Hann var talinn skurðlæknir með afbrigðum góður og almennt mjög vinsæll sem læknir. Kona hans er Margrét Kristín Pétursdóttir verkamanns á Akureyri Jónatanssonar og eiga þau fimm börn.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.