Dalbúinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júlí 2005 kl. 16:42 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júlí 2005 kl. 16:42 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Heyrði ég hvíslað
hamraveggnum frá,
hér á ég heima
hulduslóðum á.
Fegurðin fyllir
fjallasalinn minn.
Hann er minn heimur
Herjólfsdalurinn.
Svaraðu, svaraðu
segðu ekki nei.
Þú hefur heillað
unga huldumey.
Bergstallar byrgja
breiðar hamradyr,
viltu minn vinur
verða hérna kyr.
Svaraðu, svaraðu
segðu ekki nei.
Þú hefur heillað
unga huldumey.
Svaraðu, svaraðu, o.s.fr.



Lag: Ólafur M Aðalsteinsson
Texti: Guðjón Weihe