Carl Hans Ulrik Bolbroe

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. janúar 2006 kl. 10:31 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. janúar 2006 kl. 10:31 eftir Inga (spjall | framlög) (flokkur fólk)
Fara í flakk Fara í leit

Carl Hans Ulrich Balbroe var læknir í Vestmannaeyjum á tímabilinu 1832 til 1839. Hann var danskur. Carl Hans var á sínum fyrstu læknisárum herlæknir í Kaupmannahöfn. Samkvæmt tilskipun frá 6. júní 1832, var hann skipaður læknir í Vestmannaeyjum til sex ára, og fékk til leigu Syðri-Gjábakka. Carl Hans sneri aftur til Danmerkur þegar samningur hans rann út.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.