„Blik 1976/Bréf til vinar míns og frænda, VI. hluti“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 41: Lína 41:
Þegar allir svardagar voru um garð gengnir varðandi „Faktúruna í tunnunni“, kom brauðgerðarmeistarinn aftur heim til Eyja vestan úr Stykkishólmi. Þá tók hann sætið sitt í bæjarstjórn kaupstaðarins eins og ekkert hefði í skorizt, og okkur kom þar býsna vel saman. Hann hafði verið efsti maður á lista Flokksins við bæjarstjórnarkosningarnar 29. jan. (1950).

Hinn 18. jan. 1951 var haldinn fundur í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Fyrir fundi þessum lá m. a. tillaga um ráðningu lögregluþjóns. Goodtemplari nokkur í bænum hafði sótt um stöðuna. Þó að hann væri bindindismaður, sem ég taldi veigamikla kosti, hafði ég ekki persónulega trú á því, að hann reyndist vaxinn lögregluþjónsstarfinu, því að meira þurfti með, svo að hann gæti innt starfið af hendi vel og sómasamlega. Ég lagðist þess vegna gegn því, að hann yrði ráðinn í stöðuna.

Þá tók brauðgerðarmeistarinn að stríða mér, að mér fannst. Hann var býsna kerskinn. Hann sagði það skjóta dálítið skökku við, að ég skyldi ekki veita þessum manni brautargengi til þessa starfs, þar sem hann væri bindindismaður eins og ég og goodtemplari. Ekki kvaðst hann sjálfur vera bindindismaður, eins og ég vissi, og þó vildi hann stuðla að því með atkvæði sínu, að þessi goodtemplari fengi lögregluþjónsstöðuna. Mér varð á að svara honum á þá lund, að þess væru dæmin, þegar stjórnmálaleg hagsmunavon væri annars vegar, að jafnvel þeir sem neyttu áfengis daglega eða annan hvern dag árið í
Þá tók brauðgerðarmeistarinn að stríða mér, að mér fannst. Hann var býsna kerskinn. Hann sagði það skjóta dálítið skökku við, að ég skyldi ekki veita þessum manni brautargengi til þessa starfs, þar sem hann væri bindindismaður eins og ég og goodtemplari. Ekki kvaðst hann sjálfur vera bindindismaður, eins og ég vissi, og þó vildi hann stuðla að því með atkvæði sínu, að þessi goodtemplari fengi lögregluþjónsstöðuna. Mér varð á að svara honum á þá lund, að þess væru dæmin, þegar stjórnmálaleg hagsmunavon væri annars vegar, að jafnvel þeir sem neyttu áfengis daglega eða annan hvern dag árið í kring, gætu með góðri samvizku stutt goodtemplara til starfs með atkvæði sínu. En sá, sem ráðinn yrði til lögreglustarfs í bænum, þyrfti vissulega að hafa fleiri góða kosti til brunns að bera en bindindi á áfenga drykki, þó að það væri áberandi mikill kostur allra starfsmanna.

Þar með var þetta mál útkljáð og annar maður ráðinn í stöðuna.
Næsta dag þinguðu menn á „sjakketum“ þarna neðst við Heimagötuna og dreyptu á. Ég átti þar trúnaðarvin í hópnum, þó að lágt færi.

Nokkrum dögum síðar bar gesti að garði í Goðasteini, íbúðarhúsi okkar hjóna (nr. 11 við Kirkjubæjabraut). Þetta voru blessaðir stefnuvottarnir í bænum. Í fjarveru minni við skyldustörf afhentu þeir konunni minni stefnu, sem hún kvittaði fyrir. Héraðsdómslögmaðurinn, skattstjórinn í bænum ,hafði tekið að sér að reka málið fyrir hinn eiginlega stefnanda, brauðgerðarmeistarann. Tilefni stefnunnar var það, að ég hefði átt að segja brauðgerðarmeistarann neyta áfengis hvern dag árið um kring eða að minnsta kosti annan hvern dag allt árið. Já, meira að segja sagt hann fullan hvern dag eða annan hvern dag árið í kring. Þannig átti sökin a. m. k. að vera borin fram, og sótt skyldi til þeirrar sakar. En annað varð uppi á teningnum, þegar á hólminn kom.

Ég mætti ekki fyrir sáttanefnd, svo að mál þetta fór fyrir bæjarþingið. Þess vegna þurfti að stefna mér aftur.

Þegar ég las stefnuna, sá ég mér strax slag á borði. Stefnan var skakkt gerð eða orðuð hjá héraðsdómslögmanninum og þá vitleysu skyldi ég svo sannarlega notfæra mér.

Sakargiftin var þannig orðuð í stefnunni og sett innan gæsalappa: „. . þar sem ég væri undir áhrifum hvern dag eða a. m. k. annan hvern dag ..." Og taktu vel eftir: Þessi orð voru sett innan gæsalappa í stefnunni, ''sem sé mín eigin orð um sjálfan mig.''Svo mætti ég í bæjarþinginu á tilskildum tíma með greinargerð mína og frávísunarkröfu. Hún hljóðaði þannig að nokkrum hluta:

„Í sáttarkæru, réttarskjali nr. 2. hefur stefnandi eftir mér í beinni ræðu innan gæsalappa: ''„Þar sem ég er undir áhrifum hvern dag eða að minnsta kosti annan hvern dag.“'' Þessi orð kveðst stefnandi taka orðrétt eftir mér á bæjarstjórnarfundi 18. jan. s.l. og telur þau „mjög ærumeiðandi og álitsspillandi fyrir sig. Hann hefur því hafið málsókn á hendur mér sökum þeirra. Ég fæ ekki annað skilið, en að hin tilgreindu orð eigi við ''sjálfan mig'', eins og þau eru sett fram í sáttakærunni, og ég mótmæli því, að þau eigi eða geti átt við nokkurn annan eða ærumeitt hann.

Stefnanda brestur algjöran rétt og aðild til að höfða á mig meiðyrðamál út af hnjóðsyrðum eða ásökunarorðum, sem ég kann að hafa látið falla um sjálfan mig, eins og þau eru sett fram í sáttakærunni. Sjálfsásökunarrétturinn er helgasti réttur mannssálarinnar, og hann getur enginn tekið frá mér eða dæmt af mér fremur en það er í mannlegu valdi að deyða sjálfa sálina.

Í réttarhaldi, sem fram fór í máli þessu 19. marz s.l. fullyrti stefnandi að ég hefði sagt um hann á bæjarstjórnarfundi, að hann (þá hann sjálfur) væri „fullur“ hvern dag eða a. m. k. annan hvern dag. Þá koma sem sé fram nýjar sakir, en ekki minnzt einu orði á sakarefnið sjálft, sem sett er fram í sáttakæru, þ. e. ''„sjálfsásökunarorðin“.''

Þetta var þá meginuppistaðan í svari mínu við fyrstu stefnu í meiðyrðamáli þessu, og ég undraðist sljóleika hins háskólalærða lögfræðings, sem rak málið fyrir brauðgerðarmeistarann.

Í bæjarþinginu lagði ég sem sé á það áherzlu, að stefnandi hefði engan rétt til þess að stefna mér og lögsækja mig fyrir sjálfsásökun og benti dómaranum á orðalag stefnunnar. Þá gerðist atburður, sem ég gleymi aldrei:

Héraðsdómslögmaðurinn, skattstjórinn [[Jón Eiríksson]], lagðist að hálfu leyti fram á borðið fyrir framan dómarann, svo að botninn blasti við mér. Hann tók upp penna sinn og breytti orðalagi stefnunnar þarna fyrir framan nefbroddinn á sjálfum dómaranum. Það ætlaði hann að dygði í bæjarþingi Vestmannaeyja!

Ég leyfði mér að benda dómaranum á þá staðreynd í lögfræðilegri fávizku minni, að hér væri um skjala fölsun að ræða fyrir framan augun á sjálfum dómaranum, þar sem sakargiftirnar væru nú allt aðrar en teknar væru fram í stefnuafriti því, sem konan mín hefði veitt viðtöku fyrir tveim dögum í máli þessu. Hér væri um skjalafölsun að ræða, sem ég gerði kröfu til, að umboðsmaður stefnanda, hinn vísi héraðsdómslögmaður, yrði dæmdur í sektir fyrir, skjalafölsun fyrir framan augun á sjálfum dómaranum.  Jafnframt krafðist ég þess, að máli þessu yrði vísað frá bæjarþingi fyrir endalausa vitleysu og endemis þvælu um það, að ég hefði sakað sjálfan mig um drykkjuskap, sjálfur bindindismaðurinn! Nú fann ég, að ég stóð föstum fótum og þá svalaði ég mér eilítið þarna í bæjarþinginu. Þá byrsti dómarinn sig, varð hryssingslegur í minn garð, kuldalegur og nánast ruddalegur. Þessa framkomu hans hafði ég liðið fyrir áður í „skattsvikamálinu“, svo að mér kom hún ekki á óvart. Ég hafði hugsað þetta mál og tekið mínar ákvarðanir. Á þessu kýli skyldi ég stinga og hleypa út úr því vondum vessa. Hroki valdsmannsins átti sér lítil takmörk og samúðin með hinum lögfræðilega vini og samborgara nánast óviðurkvæmileg. Enn skyldi til stáls sverfa. Það hafði ég afráðið. Í bæjarþinginu lýsti ég yfir andstyggð minn á framferði dómarans og vildi láta hann bóka ávítanir mínar í sinn garð um auðsýnda andúð, hryssing og kuldaleg svör og hlutdrægni gagnvart mér. Jafnframt tilkynnti ég hon

Útgáfa síðunnar 3. desember 2009 kl. 14:00

Sér grefur gröf, þótt grafi

Eftir að greinargerðin, sem ég sendi þér hér með í þessu vina og frændabréfi mínu, tók að birtast í blaðinu, sem ég nefndi, hófust umræður í bænum um þessi viðskiptamál þingmannsins og fyrirtækja hans i höfuðstaðnum. „Háttvirtir kjósendur“ stefnanda, þingmannsins, ræddu þau líka, en þó mest í „hálfum hljóðum“. Þeir stungu nánast saman nefjum um þau innan veggja heimilanna eða í saumaklúbbum og svo yfir ölskutlum innan veggja Samkomuhússins og á „leynifundum“ broddborgaranna í samkomuhúsi þeirra neðst við Heimagötuna, þar sem fundarmenn komu til móts og skeggræðna í „sjakket“ með gljáandi silkipípuhatta. Flestum fór búningurinn vel nema þeim, sem voru of þrýstnir um þjóhnappana eins og Siggi bonn og Guffi gossi!
Ekki fór þessi andi hinna lágrödduðu viðræðna fram hjá „upplesara“ skattsvikabréfsins. Sá hann sér ekki slag á borði? -Til þess að leikurinn sá mætti takast, þurfti að tryggja sér vináttu og fylgispekt vissra manna í fulltrúaráði Flokksins. Sjálfsagt hlaut það að taka nokkurn tíma. Fyrst og fremst þurfti að geta gert einlægum fylgifiskum sínum vel til og hamla því á sama tíma, að ýmsir aðrir næðu tangarhaldi eða valdaaðstöðu í metorðastiganum.
Og allt tókst þetta smám saman. Og vinátta þingmannsins var nýtt út í yztu æsar, þó að honum sjálfum væri það algjörlega hulið að hverju var stefnt og hvað skrafað var að tjaldabaki. Og í fyllingu tímans birtist árangurinn af starfi þessu.
Meistararnir Þórbergur Þórðarson og Einar ríki Sigurðsson segja svo frá í 2. bindi af ævisögu athafnamannsins, Fagur fiskur í sjó, bls. 283-284:
„Þegar Guðlaugur komst í framboð til alþingis í fyrsta sinn, hafði hann undirbúið framboð sitt í fulltrúaráði flokksins í Eyjum á bak við þáverandi þingmann Jóhann Þ. Jósefsson. En þessu var haldið svo vandlega leyndu, að J. Þ. J. hafði engar njósnir af. Þingmaðurinn var kominn til Vestmannaeyja með konu sinni til þess að sitja þar árshátíð Flokksins. Þá var alþingismanninum fært bréf þangað, þar sem hjónin voru að búa sig til hátíðarhaldanna. Bréfið var frá fulltrúaráðinu. Í bréfinu stóð skýrum stöfum, að þess væri ekki óskað, að hann yrði áfram þingmaður Vestmannaeyinga.
Þegar hjónin höfðu lesið bréfið, var þeim ríkast i huga að hætta við að taka þátt í skemmtuninni. Þó gerðu þau það og létu sem ekkert væri.“
Svo mörg eru þau orð meistaranna og miklu fleiri.
Fulltrúaráð Flokksins hafði afráðið, að „upplesari skattsvikabréfsins“ skyldi erfa þingsætið. Og það gerði hann.

Hvers vegna svo að halda þessari sögu við lýði?

Ég hneykslast ekki á þessari spurningu. Hvað er okkur dýrmætara en óskert mannorð? Ég hef fundið mig knúðan til að hnekkja þessum lygum og óskað þess, að svör mín geymist í Bliki ,þar sem ég hef birt nokkra smákafla úr ævi og starfssögu minni á undanförnum árum.
Og viltu svara mér, vinur minn? Hvers vegna erum við að láta söguna geyma nöfn þeirra manna, sem beittu sér fyrir galdrabrennunum á 17. öldinni hér á landi? Hvort kysir þú heldur að verða brenndur lifandi með óskert mannorð en að látast á sóttarsæng ærulaus, stimplaður svikari, lygari og þjófur?
Í hvert sinn, sem trúarjátningin er lesin, minnir hin kristna kirkja á þátt Pontíusar heitins í píslarsögu Krists. Enginn álasar kristinni kirkju það.
Það tók mig um það bil tvo áratugi að uppræta úr sálarlífinu beiskju þá, sem allar þessar mannskemmdir ollu mér. Nú brosi ég að þessu öllu saman og vildi ekki hafa verið án þessara átaka fyrir nokkurn mun. Sending hinna duldu afla hugsjónamálum mínum til framdráttar!
Ég finn þó til. Ég finn til með þjóð minni, þegar trúnaðarmenn hennar og þjónar bregðast henni, verða sér og henni til minnkunar eða jafnvel svívirðingar sökum þroskaleysis eða skorts á manndómi, svo að ekki sé grófara til orða tekið.
Þegar ég er hingað kominn í þessum skrifum mínum, heyri ég, að biskupinn er að flytja ræðu í Útvarpið um séra Hallgrím Pétursson í tilefni þrjú hundruð ára ártíðar hans. Ég hætti að skrifa og hlusta af áhuga, eins og ávallt, þegar ég á þess kost að heyra hann flytja ræðu. Hann er líka embættismaður ríkisins.
Þegar biskupinn hefur flutt ræðu sína og lagt Guðríði húsfreyju gott orð, farið um nafn hennar hlýjum viðurkennandi orðum, kemst ég við og setzt á ný við skrifborðið. Ég er hrærður. Og hvers vegna það? Af því að þjóð mín hefur níðzt á nafni þessarar blessaðrar konu um aldir. Hún hefur í ræðu og riti verið dregin í svaðið sem hvert annað úrþvætti. Og enn eru sum skáld okkar „að slá sig til riddara“ með þeirri kenningu, að hún hafi verið lauslætiskvendi. Það er skepnunum óvirðing og níð að kalla slíkan skáldskap skepnuskap. Þar hæfir grófara orð um það andans sorp.
Já, ég hrærist af gleði, þegar níðingslundin er kveðin í kútinn.

Önnur lota

Kaup kaups

Þegar Flokksforustan uppgötvaði, hversu auðvelt var að fá mig sektaðan, þar sem ég var dæmdur til AÐ GREIÐA RÍKISSJÓÐI SEKTIR fyrir persónulegar ærumeiðingar í minn garð þrátt fyrir upptök ráðherrans og skattstjórans að deilum þessum, þá afréð Flokksforustan, að fram skyldi haldið í sama anda í trausti á dómsvaldið í kaupstaðnum. Nokkra svölun gætu þær málsóknir og sektir veitt þeim vegna kosningaósigursins 29. janúar.
Fyrir bæjarstjórnarkosningarnar hafði ég skrifað langa grein í Framsóknarblaðið í Eyjum um forustulið Flokksins, eiginhagsmunabaráttu þess og vanstjórn, meðan þeir höfðu þar völdin, mennirnir sem skipuðu forustuna. Grein þessa kallaði ég Óhappamenn -niðurrifsmenn. Án efa átti hún nokkurn þátt i kosningasigri okkar Framsóknarmanna við bæjarstjórnarkosningarnar. -Nú sá .,upplesari skattsvikabréfsins“, sem orðinn var forustumaður Flokksins, sér slag á borði eftir ábendingu héraðsdómslögmannsins. Tínd voru upp nokkur bitur orð úr grein þessari og talin meiðyrði, sem rétt væri að fá dóm fyrir. Síðan stefndi Guðlaugur. „upplesari skattsvikabréfsins“, mér fyrir þau. Þá hófst önnur lota þessara málaferla.br> Héraðsdómslögmaðurinn, sjálfur skattstjórinn ,sótti mál þetta fyrir „upplesarann“ og leiddi hann nánast við hlið sér inn í bæjarþingið eins og einhvern ómálga peyja. Af þeirri sjón hafði ég mikla ánægju. Það var mér vissulega gleðiefni að sjá þá saman hlið við hlið í stólunum í bæjarþingskrubbunni að Tindastóli, bæjarfógetasetrinu í Eyjum. Og mig langar til að skjóta því hérna inn í mál mitt, að það varð mitt hlutskipti að láta byggja hús í bænum, þar sem bæjarfógetaembættið fékk húsnæði við sitt hæfi, svo að við Eyjabúar þyrftum ekki lengur að blygðast okkar fyrir aðbúnað bæjarfógetaembættisins, þegar t. d. útlendingar áttu erindi til þessa æðsta embættismanns í bæjarfélaginu, fulltrúa íslenzka ríkisins. Það var árið 1964 að bæjarfógetaembættið fékk inni í byggingu Sparisjóðs Vestmannaeyja, í hinni nýju byggingu hans, fyrir atbeina minn. Mér þótti vænt um að geta komið þessu svona vel fyrir, enda voru bæjarfógetarnir sjálfir jafnan velviljaðir mér og starfi mínu og engir ofstækismenn að mínu mati. En þetta er allt önnur saga og hvarf frá efni frásagnar minnar.
Þegar hér var komið sögu, hafði ég þjálfast þó nokkuð í þessari málsvarnariðju og hafði, þó að skömm sé frá að segja, býsna mikla ánægju af henni. Mér gáfust þarna tök á að sálgreina lögfræðingana og fá staðfestingu á samstöðu þeirra í málarekstri þessum gegn leikmanninum. Skerpa þeirra og gáfnafar varð mér líka ljósara en áður og listin sú að kunna að beita lögfræðilegum rökum. Þarna hafði ég líka ánægju af því að sjá héraðsdómslögmanninn í bæjarþinginu með skjólstæðing sinn, sænska konsúlinn, við hlið sér eins og svolítinn drenghnokka, sem ekki kunni fótum sínum forráð.
Klögumálin gengu á víxl, eins og segir í sögunum okkar. Þetta var raunar orðinn spennandi sjónleikur. Málin sótt og varin, færð fram sök og gagnsök, því að ég gagnstefndi Guðlaugi Gíslasyni fyrir að lesa bréfið, skattsvikabréfið, í eyru almennings. Ég gerði kröfu til þess að hann yrði dæmdur til að leggja bréfið fram í bæjarþinginu. Þá fannst mér málsvörnin verða að kátbroslegri skrítlu undir verndarvæng héraðsdómslögmannsins, því að „upplesarinn“ var látinn leggja fram í bæjarþinginu þannig orðaða vörn gegn því, að hann gæti lagt fram „Skattsvikabréfið“, og tók dómarinn þessa vörn hans góða og gilda!:
Við athugun kemur í ljós, að í skjölum þeim, sem ég enn á eflir frá framboðsfundinum 27. jan. s.l., fyrirfinnst ekkert bréf eða skjal, sem gæti verið það, sem um ræðir í stefnu. Ég leyfi mér því að krefjast algjörrar sýknar í máli þessu og málskostnað eftir mati dómarans.“
Í málsvörn þessara undir handleiðslu héraðsdómslögmannsins var vissulega treyst á dómarann, vinsemd hans, samúð og flokkslega fylgispekt. Og vissulega brást hann ekki. Hann tók það gott og gilt, að skattsvikabréfið fannst ekki í bréfarusli því, sem sakborningurinn átti eftir í fórum sínum frá bæjarmálafundinum. Að öðrum kosti var æru þingmannsins hætta búin. Verja þurfti ráðherrann til hins ýtrasta. Annað gátu beinlínis talist svik við Flokkinn.
Í þessari lotu varð útkoman „kaup kaups“, eins og eitt bæjarblaðið í Eyjum orðaði það. Ég var dæmdur til að greiða sektir í ríkissjóð og málskostnað samtals kr. 900,00 og upplesari skattsvikabréfsins samtals kr. 1300,00. Þarna fannst fólki, að dómarinn standa sig furðu vel og betur en búizt var við.
Ekki minnist ég þess. að þessar sektir væru nokkru sinni innheimtar. Gat sú vanræksla verið hlífð við Flokksforingjann, upplesara skattsvikabréfsins?

Þriðja lota

Fyrsta stefna. Hóskólapróf í lögfræði er ekki einhlítt

Þegar allir svardagar voru um garð gengnir varðandi „Faktúruna í tunnunni“, kom brauðgerðarmeistarinn aftur heim til Eyja vestan úr Stykkishólmi. Þá tók hann sætið sitt í bæjarstjórn kaupstaðarins eins og ekkert hefði í skorizt, og okkur kom þar býsna vel saman. Hann hafði verið efsti maður á lista Flokksins við bæjarstjórnarkosningarnar 29. jan. (1950).
Hinn 18. jan. 1951 var haldinn fundur í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Fyrir fundi þessum lá m. a. tillaga um ráðningu lögregluþjóns. Goodtemplari nokkur í bænum hafði sótt um stöðuna. Þó að hann væri bindindismaður, sem ég taldi veigamikla kosti, hafði ég ekki persónulega trú á því, að hann reyndist vaxinn lögregluþjónsstarfinu, því að meira þurfti með, svo að hann gæti innt starfið af hendi vel og sómasamlega. Ég lagðist þess vegna gegn því, að hann yrði ráðinn í stöðuna.
Þá tók brauðgerðarmeistarinn að stríða mér, að mér fannst. Hann var býsna kerskinn. Hann sagði það skjóta dálítið skökku við, að ég skyldi ekki veita þessum manni brautargengi til þessa starfs, þar sem hann væri bindindismaður eins og ég og goodtemplari. Ekki kvaðst hann sjálfur vera bindindismaður, eins og ég vissi, og þó vildi hann stuðla að því með atkvæði sínu, að þessi goodtemplari fengi lögregluþjónsstöðuna. Mér varð á að svara honum á þá lund, að þess væru dæmin, þegar stjórnmálaleg hagsmunavon væri annars vegar, að jafnvel þeir sem neyttu áfengis daglega eða annan hvern dag árið í kring, gætu með góðri samvizku stutt goodtemplara til starfs með atkvæði sínu. En sá, sem ráðinn yrði til lögreglustarfs í bænum, þyrfti vissulega að hafa fleiri góða kosti til brunns að bera en bindindi á áfenga drykki, þó að það væri áberandi mikill kostur allra starfsmanna.
Þar með var þetta mál útkljáð og annar maður ráðinn í stöðuna. Næsta dag þinguðu menn á „sjakketum“ þarna neðst við Heimagötuna og dreyptu á. Ég átti þar trúnaðarvin í hópnum, þó að lágt færi.
Nokkrum dögum síðar bar gesti að garði í Goðasteini, íbúðarhúsi okkar hjóna (nr. 11 við Kirkjubæjabraut). Þetta voru blessaðir stefnuvottarnir í bænum. Í fjarveru minni við skyldustörf afhentu þeir konunni minni stefnu, sem hún kvittaði fyrir. Héraðsdómslögmaðurinn, skattstjórinn í bænum ,hafði tekið að sér að reka málið fyrir hinn eiginlega stefnanda, brauðgerðarmeistarann. Tilefni stefnunnar var það, að ég hefði átt að segja brauðgerðarmeistarann neyta áfengis hvern dag árið um kring eða að minnsta kosti annan hvern dag allt árið. Já, meira að segja sagt hann fullan hvern dag eða annan hvern dag árið í kring. Þannig átti sökin a. m. k. að vera borin fram, og sótt skyldi til þeirrar sakar. En annað varð uppi á teningnum, þegar á hólminn kom.
Ég mætti ekki fyrir sáttanefnd, svo að mál þetta fór fyrir bæjarþingið. Þess vegna þurfti að stefna mér aftur.
Þegar ég las stefnuna, sá ég mér strax slag á borði. Stefnan var skakkt gerð eða orðuð hjá héraðsdómslögmanninum og þá vitleysu skyldi ég svo sannarlega notfæra mér.
Sakargiftin var þannig orðuð í stefnunni og sett innan gæsalappa: „. . þar sem ég væri undir áhrifum hvern dag eða a. m. k. annan hvern dag ..." Og taktu vel eftir: Þessi orð voru sett innan gæsalappa í stefnunni, sem sé mín eigin orð um sjálfan mig.Svo mætti ég í bæjarþinginu á tilskildum tíma með greinargerð mína og frávísunarkröfu. Hún hljóðaði þannig að nokkrum hluta:
„Í sáttarkæru, réttarskjali nr. 2. hefur stefnandi eftir mér í beinni ræðu innan gæsalappa: „Þar sem ég er undir áhrifum hvern dag eða að minnsta kosti annan hvern dag.“ Þessi orð kveðst stefnandi taka orðrétt eftir mér á bæjarstjórnarfundi 18. jan. s.l. og telur þau „mjög ærumeiðandi og álitsspillandi fyrir sig. Hann hefur því hafið málsókn á hendur mér sökum þeirra. Ég fæ ekki annað skilið, en að hin tilgreindu orð eigi við sjálfan mig, eins og þau eru sett fram í sáttakærunni, og ég mótmæli því, að þau eigi eða geti átt við nokkurn annan eða ærumeitt hann.
Stefnanda brestur algjöran rétt og aðild til að höfða á mig meiðyrðamál út af hnjóðsyrðum eða ásökunarorðum, sem ég kann að hafa látið falla um sjálfan mig, eins og þau eru sett fram í sáttakærunni. Sjálfsásökunarrétturinn er helgasti réttur mannssálarinnar, og hann getur enginn tekið frá mér eða dæmt af mér fremur en það er í mannlegu valdi að deyða sjálfa sálina.
Í réttarhaldi, sem fram fór í máli þessu 19. marz s.l. fullyrti stefnandi að ég hefði sagt um hann á bæjarstjórnarfundi, að hann (þá hann sjálfur) væri „fullur“ hvern dag eða a. m. k. annan hvern dag. Þá koma sem sé fram nýjar sakir, en ekki minnzt einu orði á sakarefnið sjálft, sem sett er fram í sáttakæru, þ. e. „sjálfsásökunarorðin“.
Þetta var þá meginuppistaðan í svari mínu við fyrstu stefnu í meiðyrðamáli þessu, og ég undraðist sljóleika hins háskólalærða lögfræðings, sem rak málið fyrir brauðgerðarmeistarann.
Í bæjarþinginu lagði ég sem sé á það áherzlu, að stefnandi hefði engan rétt til þess að stefna mér og lögsækja mig fyrir sjálfsásökun og benti dómaranum á orðalag stefnunnar. Þá gerðist atburður, sem ég gleymi aldrei:
Héraðsdómslögmaðurinn, skattstjórinn Jón Eiríksson, lagðist að hálfu leyti fram á borðið fyrir framan dómarann, svo að botninn blasti við mér. Hann tók upp penna sinn og breytti orðalagi stefnunnar þarna fyrir framan nefbroddinn á sjálfum dómaranum. Það ætlaði hann að dygði í bæjarþingi Vestmannaeyja!