Bjarni Ólafsson (Svaðkoti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 14:49 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2006 kl. 14:49 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Bjarni var bóndi og formaður í Svaðkoti. Hann var fæddur að Steinmóðarbæ undir Eyjafjöllum 22. janúar 1836. Kona Bjarna var Ragnheiður Gísladóttir ættuð úr Fljótshlíð. Sagt var að þau hjón hefðu verið ákaflega samhent og dugmikil í búskapnum.

Bjarni fórst af bát sínum 16. júní 1883. Veður var gott og sjór sléttur en talið var að illhveli hefði grandað bátnum.

Meðal barna Ragnheiðar og Bjarna var Guðríður í Brautarholti, kona Jóns Jónssonar frá Dölum.


Heimildir

  • Þorsteinn E. Víglundsson. Blik, ársrit gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Maí 1962.