Björn H. Jónsson (skólastjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júní 2006 kl. 10:15 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júní 2006 kl. 10:15 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Björn Hermann Jónsson fæddist 24. júní 1888 í Miðfirði. Björn ólst upp hjá foreldrum sínum þar til hann var 19 ára. Þá hvarf hann til náms í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði þar sem hann lauk gagnfræðaprófi 1907. Árið 1909 fór Björn til Danmerkur til framhaldsnáms þar sem hann dvaldist í 5 ár.

Árið 1914 þurfti Steinn Sigurðsson skólastjóri í Vestmannaeyjum frá að hverfa. Björn Hermann var þá einn af þeim átta sem sóttu um stöðuna. Hlaut hann hana með atkvæðum allra skólanefndarinnar. Björn var skólastjóri í Vestmannaeyjum í 6 ár. Hann var áhrifaríkur og ötull og áhugasamur hugsjónamaður. Kona Björns var Jónína G. Þórhallsdóttir.