Björgvinsbeltið

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 09:45 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 09:45 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Björgvinsbeltið á Hringskersgarðsvita

Það var Björgvin Sigurjónsson, stýrimaður, sem hannaði nýja gerð bjarghrings og nefndi hringinn Björgvinsbeltið. Margir kostir eru við beltið en það er mjög létt og hægt að kasta því mun lengra en venjulegum bjarghringjum. Auðvelt er að hífa mann upp úr sjónum með beltinu, hvort sem hann er einn eða björgunarmaður með. Björgvinsbeltin eru á öllum skipum og höfnum.