„Binni í Gröf“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
mEkkert breytingarágrip
Lína 14: Lína 14:
Benóný var ávallt með úrvals mannskap enda samrýmdist hvers konar seinagangur og stirðleiki ekki skapi skipstjórans.
Benóný var ávallt með úrvals mannskap enda samrýmdist hvers konar seinagangur og stirðleiki ekki skapi skipstjórans.


[[Óskar Kárason]] samdi formannavísu um Guðmund:
[[Óskar Kárason]] samdi formannavísu um Binna:
:''Hræðist aldrei hroða sjá  
:''Hræðist aldrei hroða sjá  
:''hraustur Grafa Binni.  
:''hraustur Grafa Binni.  

Útgáfa síðunnar 13. október 2006 kl. 10:51

Binni í Gröf

Benóný Friðriksson var fæddur 7. janúar 1904 og hann lést 12. maí 1972. Benóný var betur þekktur sem Binni í Gröf og var hann landsfrægur aflamaður. Hann fæddist í Vestmannaeyjum og var sonur formannsins Friðriks Benónýssonar og Oddnýjar Benediktsdóttur. Kona Binna var Katrín Sigurðardóttir frá Þinghól í Hvolhreppi og áttu þau saman 7 börn.

Sjómennska

Alveg frá upphafi beindist hugur Binna að sjónum. Ekki var hann gamall þegar hann hóf að dorga í höfninni og eyddi hann góðum tíma af æsku sinni niðri á höfn. Ekki var hann fermdur þegar hann hóf að róa. Það var á smáferju hjá Jakobi Tranberg og kom strax í ljós mikill áhugi og fiskisæld. Ásamt þremur vinum sínum hóf Binni formennsku á sexæring 15 ára gamall. Fiskuðu félagarnir mikið undir styrkri stjórn Binna.

Binni gerðist með afbrigðum góður sjó- og aflamaður, einhver mesti sem við Vestmannaeyjar hefur fiskað. Binni reri fyrstu vertíðir sínar á vélbát á m/b Nansen og var hann formaður á bátnum í forföllum Jóhanns á Brekku. Árið 1926 var honum boðið að taka formennsku á vélbátnum m/b Gúllu. Þar var hann starfandi þrjár vertíðir, síðan tók hann við bátnum Newcastle, og var svo með vélbátana m/b Gottu, m/b Heklu, m/b Gulltopp, e/s Sævar, m/b Þór og m/b Andvara. Eftir það keypti hann skipið m/b Gullborg og varð landsþekktur fyrir formennsku sína á þeim bát. Það var hans happaskip.

Binni varð aflakóngur í Vestmannaeyjum árið 1954 og hélt þeim titli samfellt í 6 vertíðir og fékk titilinn samtals sjö sinnum. Nokkrum sinnum varð hann hæstur yfir landið.

Áhöfn Gullborgar Re 38 uppi á dekki Skipshöfn Benónýs Friðrikssonar á Gullborgu. Sjá nánari uppýsingar með því að smella á myndina

Benóný var ávallt með úrvals mannskap enda samrýmdist hvers konar seinagangur og stirðleiki ekki skapi skipstjórans.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Binna:

Hræðist aldrei hroða sjá
hraustur Grafa Binni.
Þundur fiskinn þykir sá,
það skal haft í minni.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Binni með sjómanns sinni,
svalur frá Gröf er talinn,
Friðriks arfi, þó iðan
ill vilji þiljur fylla,
Gullborgu létt á lullar
leiður ei þétt til veiða.
Æðstan kóng afla hæstan
Ísalands hann ég lýsi.

Áhugamál og önnur afrek

Á yngri árum var Binni fimur með boltann, hann var einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Týs og keppti með þeim en hann var einnig í fremstu röð í fimleikum. Önnur hreyfing var Binna hugleikin og eyddi hann góðum tíma í lundaveiði þó að tækifærin kæmu sjaldan. Hann hafði dálæti af vísum og kunni ógrynni af þeim ásamt því að kveðast á við félaga.

Binni var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín.



Heimildir

  • Benóný Friðriksson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1972, bls. 46.
  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.