Bernódus Þorkelsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2007 kl. 11:13 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2007 kl. 11:13 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Bernódus Þorkelsson fæddist 3. júní 1920 og lést 11. febrúar 1957. Hann bjó á Kirkjuvegi 11, Borgarhóli.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Bernódus:

Bernótus karfa krusar,
knár þó að ýfist bára,
Þorkeli bragn er borinn,
baldinn við sjó og kaldur.
Spyrðling á Hilmi hirðir,
hafið þó stormur skafi.
Garpurinn glímu snarpur,
góðan á formanns hróður.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.