Arnarhóll

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. janúar 2006 kl. 22:40 eftir Oskarpetur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. janúar 2006 kl. 22:40 eftir Oskarpetur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Arnarhóll með Heimaklett í baksýn









Arnarhóll, byggt árið 1913.











Húsið Arnarhóll við Faxastíg 10 í Vestmannaeyjum, var byggt árið 1913. Gísli Jónssn útvegsbóndi, byggði húsið. Gísli og Guðný Einarsdóttir kona hans fluttu í húsið ásamt dætrunum Guðnýu Svövu fædd 1911 dáinn 2001, hún giftist Óskari P. Einarssyni 1908 – 1878 í Stakkholti, og Salóme fædd 1913 dáinn 1996, hún giftist Vigfúsi Jónssyni 1913 – 1970 Heiðarvegi 41. Nafnið er af Arnarhól í Landeyjum, húsi því er Gísli fæddust í og Guðný fæddist og ólst upp í.

Í bókinni, Einar í Betel, eftir Einar J. Gíslason, segir m.a. “Pabbi fékk úthlutað húslóðum við Faxastíg 10. Það var Sigurður Sigurfinnsson, faðir Einars Sigurðsson ríka, sem úthlutaði lóðunum og Karl Einarsson sýslumaður samþykkti lóðasamninginn. Húsið var byggt norðarlega í lóðinni, steyptur kjallari, hæð og ris úr timbri, klætt bárujárni. Grunnflötur hússins var rétt 39 fermetrar. Auk íbúðarhússins byggði pabbi útigeymslur og skömmu síðar tveggja kúa fjós og hlöðu. Foreldrar mínir fluttu inn í nýbyggt húsið í ágústmánuði 1913 og nefndu það Arnarhól”.

Eftir að Gísli og Guðný voru flutt inn fæddust þeim fjögur börn en þau voru. Óskar Magnús fæddur 1915 dáinn 1991, hann kvæntist Kristínu Jónínu Þorsteinsdóttur (1908 – 1998). Hafsteinn Eyberg (lést átta mánaða gamall), Einar Jóhannes fæddur 1923 dáinn 1998, hann kvæntist 1. Guðnýu Sigurmundsdóttur (1926 – 1963), 2. Sigurlína Jóhannsdóttir. Kristín Þyrí fædd 1925 dáinn 1992, hún giftist Haraldi Steingrímssyni (1923 –1989).

Lífsbaráttan.

Á þessum árum stundaði Gísli sjóinn, hann var skipstjóri á bát sínum, m/b. Víkingi VE. 133, sem hann átti með öðrum. Eins áttu þau skepnur sem þau voru með í húsum þeim er byggð voru á lóðinni við Arnarhól, sauðfé og beljur.

Í bókinni, Einar í Betel, lýsir Einar hvernig fólk reyndi að draga fram lífið á þessum árum. “Góð flöt var fyrir sunnan húsið, fyrst var þar gert stakkstæði til þurrkunnar á saltfiski sem var notað í nokkur ár. Síðar var stakstæðið rifið upp, lóðin girt og settur upp matjurtagarður. Man ég vel þegar mamma fór til Guðrúnar Runólfsdóttur frá Sveinsstöðum, móðir Ársæls Sveinssonar á Fögrubrekku, og keypti rabarbarahnausa. Guðrún bjó í Strembu þar sem íbúðarhúsið Lukka var síðar byggt. Rabarbarinn spratt vel í lóðinni á Arnarhóli og var nýttur til heimilisins”. Sauðfé var við Arnarhól allt til ársins 1970, þegar Einar flyst til Reykjavíkur.

Í bók sinni Einar í Betel, segir Einar frá fólki er var á Arnarhól.

“Auk vinnufólks og fjölskyldunnar voru í heimilinu Einar afi minn þorsteinsson, Sveinn Ketilsson Eyfellingur og Elís J. Stefánsson. Elís kom að Arnarhóli austan að landi og bað um kjallaraherbergi í tíu til tólf daga, en var þar í tuttugu og fjögur ár. Eitthvað hefur viðmótið á Arnarhóli verið í lagi við þetta fólk.”

Guðný Einarsdóttir var einn af stofnendum Hvítasunnusafnaðarins hér í Vestmannaeyjum, sem var upphaf af starfi Hvítasunnumanna á Íslandi. Einar og Óskar skírðust í Betel, og þeir tóku virkan þátt í starfi Betelsafnaðarins í Vestmannaeyjum. Einar safnaðarhirðir frá árinu 1948 til 1970 og forstöðumaður Fíladelfíusafnaðarins í Reykjavík frá 1970 til ársins 1990. Óskar tók við starfi Einars er hann flutti héðan, og gengdi því starfi þar til Snorri, sonur hans tók við því starfi 1982. Guðný Einarsdóttir lést 31. mars 1956, Einar sem hafði búið í íbúðinni í Betel í nokkur ár flytur árið 1957 að Arnarhóli, hann var þá kvæntur Guðrúnu Sigurmundsdóttur og áttu þau þrjú börn. þau voru, Guðrún Margrét fædd 1949, Guðni fæddur 1953 og Sigurmundur Gísli fæddur 1957. Gísli flutti í kjallarann.

6. okt. 1963, lést Guðrún Sigurmundsdóttir eiginkona Einars, hann kvæntist sinni seinni konu sinni Sigurlínu Jóhannsdóttur 1964, þau eignuðust dóttirina Guðnýu árið 1965.

Það var alltaf gott að heimsækja Gísla Jónsson, ég var aðeins barn að aldri þegar hann var á Arnarhóli. Langafi átti alltaf Síríus súkkulaði í skápnum sínum, sem hann vissi að munnar litla fólksins þótti gott að fá. Hann hafði þann góða eiginleika að vera alltaf í góðu skapi og hress, hann átti gott með að segja frá og það var gaman að hlusta á hann. 23. janúar 1973 varð Gísli 90 ára, en ekki varð mikið úr afmælisveislu hjá honum, jarðeldar brutust út á Heimaey og allir urðu að flýja héðan frá Eyjum.

Einar Jóhannes og fjölskylda fluttu til Reykjavíkur sumarið árið 1970, er hann verður safnaðarhirðir í Fíladelfíu. Gísli langafi flutti þá til Salóme og Vigfúsar á Heiðarveg 41.


Kjartan B. Guðmundsson og Björk Pétursdóttir, kaupa Arnarhól 1971. Húsið var í leigu þegar þau kaupa það og var reyndar allan tíman sem þau áttu það, að undanskildum nokkrum dögum um jólin 1974, en það var eini tíminn sem þau voru í húsinu.

María Þorgrímsdóttir og Guðni Svan Sigurðsson, ásamt dætrum sínum þremur, þeim Sigríði Kolbrúnu, Jónínu Katrínu og Hrefnu Björk, flytja inn í Arnarhól árið 1974. Þau tóku alla hæðina í gegn og pússuðu upp allan panelinn sem kom undan veggfóðrinu. María gerði blómabeð og gróðursetti blóm á lóðinni. María og dætur hennar flytja út 1976.

Ragnar Sigurbjörnsson og Ólafía Jónsdóttir kaupa húsið árið 1977 af Guðna Svan, og flytja inn ásamt börnum Ólafíu, Sæunni, Helga og Ólafi Sævarsbörnum, og barni þeirra Gunnsteinni Adólf Ragnarssyni. Gísli Már Ragnarsson fæddist 1979. Ragnar og Ólafía byggðu kvistana á þaki húsins og skveruðu allt háaloftið, þau lokaðu opinu niður í kjallara úr eldhúsinu. Þegar þetta er ritað leigir Bjarki Sævarsson, bróðir Sæunnar Arnarhól.

Einar O. P. Brekkan og Ingibjörg Kristmannsdóttir ásamt fjórum börnum þeirra, þeim Ingibjörgu, Rósu, Pétri og Kristmanni flytja inn í húsið 1981. Skv. skriflegum heimildum frá Oktavíu Andersen, þinglýsti Einar afsali fyrir Arnarhól 3. feb. 1981. Einar skipti um alla glugga á hæðinni, fram að því hafði verið einafallt gler í húsinu, einnig einangraði hann hæðina og skipti um járn. Einar og Ingibjörg selja húsið árið 1984.

Jóhann Þorsteinsson og Kolbrún Guðmundsdóttir kaupa Arnarhól af Einari og Ingibjörgu í ársbyrjun 1984, þau flytja inn með börnin sín þeim, Þorsteini, Gðrúnu Ásu og Gerði Ósk. Jóhann og Kolbrún gerðu húsið nánast fokhellt, gerðu nýtt eldhús og opnuðu hæðina, breyttu staðsetningu stigans upp á loft og kláruðu loftið. Einar Sumarliðason og Oddbjörg Inga Jónsdóttir, kaupa húsið af Jóhanni og Kolbrúnu árið 1987, og flytja inn ásamt Lovísu Guðmundsdóttur, dóttur Oddbjargar. Einar vann mikið við húsið og lagfærði, hann gróf jarðveg frá húsinu og setti lekarör við það og skipti um jarðveg. Hann klæddi viðbyggingu, skipti um glugga á henni og sett allt nýtt á baðið. Þau hólfuðu hæðina og útbjuggu herbergi þar. Í kjallara steypti Einar grunninn setti nýja grind og klæðningu á veggi, skipti um inntak fyrir vatn og rafmagn. Einar gerði innkeyrslu á lóð Arnarhóls fyrir bíla, gróðursetti tré og steypti vegg vestan við lóðina. Langafi og langamma Einars, leigðu í kjallara Arnarhóls þegar þau fluttu til Eyja, á sínum tíma.

Halldóra Ólafsdóttir og Friðrik Á. Vigfússon, keyptu húsið af Einari og Oddbjörgu, árið 1994. Þau gerðu innangegt af hæðinni í kjallara. Halldóra og Friðrik fengu skilti með nafni Arnarhóls, sem er á kvisti húsins í innflutningsgjöf. Það var hagleiksmaðurinn og smiðurinn Sigurður Sigurðsson, frá Vatnsdal sem smíðaði skiltið, en hann er tengdafaðir Hörpu Njálsdóttur, móðir Halldóru.

Selma Ragnarsdóttir kaupir Arnarhól sumarið 2000 af Halldóru og Friðriki. Hún flutti inn ásamt syni sínum, Óskari Alex Sindrasyni. Selma lét klæða húsið að utan og einangra, og nýtt járn á þakið, sumarið 2003. Selma flutti frá Vestmannaeyjum árið 2004 og hefur leigt Arnarhól síðan hún fór héðan.

Arnarhóll hefur verið heppinn með eigendur sína, þeir hafa hugsað vel um húsið og endurnýjað og lagfært það sem þurft hefur að gera, húsið er glæsilegt.

Það vekur athygli mína að allir sem keypt hafa Arnarhól, eftir langafa minn, hafa flutt frá Eyjum, að undanskildum þeim Maríu Þorgrímsdóttur og Ingibjörgu Kristmannsdóttur.

Óskar Pétur Friðriksson, íbúi á Þingeyri við Skólaveg 37 Vestmannaeyjum, tók saman í janúar 2006.



· Munnlegar heimildir.

Einar O. P. Brekkan, Einar Sumarliðason, Friðrik Ásmundsson, Guðni Einarsson, Gylfi Sigurðsson, Hafsteinn Guðfinnsson, Halldóra Ólafsdóttir, Kjartan B. Guðmundsson, Kolbrún Guðmundsdóttir, María Þorgrímsdóttir, Selma Ragnarsdóttir, Sigurmundur Gísli Einarsson, Valgerður Erla Óskarsdóttir.

· Skriflegar heimildir.

Einar í Betel, eftir Einar J. Gíslason, útg. Fíladedlía Forlag, Reykjavík, 1985, Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja, með aðstoð Jónu Bjargar Guðmundsdóttur, skjalavarðar, Sýslumannsembættið í Vestmannaeyjum, með aðstoð Oktavíu Andersen. www.islendingabok.is.