Þorvaldur Guðjónsson (Sandfelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 14:52 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2006 kl. 14:52 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þorvaldur Guðjónsson, Sandfelli, fæddist að Moldnúpi undir Eyjafjöllum 10. mars árið 1893. Þorvaldur fluttist til Vestmannaeyja með foreldrum sínum árið 1908. Formennsku hóf Þorvaldur árið 1915 á Sillu og síðar á Rán og Gammi. Frá 1920 og til 1930 var Þorvaldur formaður með ýmsa báta fyrir Gísla Magnússon. Þá keypti Þorvaldur Leó og var með hann fram til 1950 þegar heilsan fór að bresta. Þorvaldur lést 13. apríl 1959.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.