Þorsteinn Jónsson (héraðslæknir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 08:39 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júlí 2005 kl. 08:39 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þorsteinn Jónsson, héraðslæknir og alþingismaður.

Þorsteinn Jónsson, héraðslæknir, var alþingismaður Vestmannaeyja frá 1887 til 1890, en þá sagði hann af sér þingmennsku. Þorsteinn var fæddur á Miðkekki í Flóa 17. nóvember 1840 og lést í Reykjavík þann 18. ágúst 1908. Foreldrar hans voru Jón Þorsteinsson (fæddur 19. júní 1799, dáinn í júlí 1888) bóndi á Miðkekki og síðar í Hræringsstaðahjáleigu og síðari konu hans, Þórdís Þorsteinsdóttir (fædd 18. ágúst 1795, dáin 26. maí 1866) í Hræringastaðahjáleigu. Þorsteinn kvændist þann 12. október 1865 henni Matthildi (Fædd 6. janúar 1833, dáin 5. mars 1904) dóttur Magnúsar Þorkelssonar bónda að Fjarðarhorni í Helgafellssveit og Sigríðar Pétursdóttir. Þorsteinn varð stúdent 1862 í Reykjavík. Hann las læknisfræði hjá Jóni Hjaltalín landlækni frá haust 1862. Þorsteinn tók læknispróf árið 1865. Hann varð héraðslæknir í Vestmannaeyjum árið 1865 og gengdi því til ársins 1905. Þorsteinn var prófdómari við læknapróf 1907. Hann var einnig bókasali um hríð. Einnig hafði hann á hendi veðurathuganir fyrir dönsku veðurstofuna í fjölda mörg ára. Þorsteinn var hreppsnefndaroddviti frá 1874 til 1902. Hann var oft settur sýslumaður í Vestmannaeyjum um skemmri og lengri tíma. Þorsteinn fluttist til Reykjavíkur sumarið 1906 og dvaldist þar til æviloka.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.