Þorgeir Jóelsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 07:55 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2006 kl. 07:55 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Leiðrétti og bætti við tengli)
Fara í flakk Fara í leit

Þorgeir Jóelsson, Fögruvöllum og Sælundi, var fæddur á Vesturhúsum í Vestmannaeyjum 5. júní 1904. Foreldrar hans voru Jóel Eyjólfsson og Þórdís Guðmundsdóttir.

Þorgeir hóf ungur sjómennsku en formennsku byrjaði Þorgeir árið 1925 með Lunda I. Eftir þá vertíð kaupir Þorgeir ásamt fleiri mönnum Lunda II og er formaður með hann yfir 30 vertíðir. Einnig var Þorgeir formaður á Hörpu, Hrafni og Von II.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.