Þúsund eldar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 21:39 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 21:39 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1994 1995 1996
Hér lifa þúsund eldar,
loga lífsins tré.
Ég man þig bjarta meyja,
margar stjörnur sé.
Ég mun ætíð elska,
alla mína tíð,
komdu vina,komdu fljótt,
kæra þjóðhátíð.
Viðlag:
Þú eyjan mín ætíð fögur ert,
þín fegurð skær en hvergi skert
þótt margra alda sért.
Sæl er saga þín­, sæl er fjallasýn.
Ég þrái þig, mig þyrstir,
þor'að tendra bál,
ég þarfnast þín, ég þjóra
þjóðhátíðarskál.
Hér ljóma ótal andlit,
æskan undurfríð,
þótt flakki klettar, fjúki gjall,
fæ ég þig um síð.
Lag: Þorvaldur Guðmundsson
Texti: Sigurður Óli Hauksson