Út við sund og Eyjar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 09:35 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 09:35 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Út við sund og Eyjar
ómar hlátur skær.
Á fjallamenn og meyjar
mánaleiftri slær
Stjörnubjartur himinn logar lýsir grund
leiftri slær á báru við Suðureyjarsund.
Er dvína dagsins ómar
og dofnar sólarglóð.
Kvöldsins hörpuhljómar
heilla dreng og fljóð.
Stjörnubjartur himinn logar lýsir grund
?'eiftri slær á báru við Suðureyjarsund.
Söngur ávallt eykur
eyjamannsins fjör.
Nú er lífið leikur
og lund í gleði ör.
Stjörnubjartur himinn logar lýsir grund
leiftri slær á báru við Suðureyjarsund
Hjá ævintýra eldi
út við sundin blá
Á svona kyrru kveldi
kviknar ástarþrá.
Stjörnubjartur himinn logar lýsir grund
leiftri slær á báru við Suðureyjarsund
Lag: Gísli Helgason
Texti: Guðjón Weihe