Ólafur Halldórsson (læknir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júní 2005 kl. 10:39 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júní 2005 kl. 10:39 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Halldórsson, læknir 1938 til 1957. Fæddur í Vestmannaeyjum 4. desember 1906. Foreldrar: Halldór Gunnlaugsson héraðslæknir þar og kona hans Anna Sigrid Threp. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1927. Las læknisfræði við Kaupmannahafnarháskóla, en settist í læknadeild Háskóla Íslands og lauk þaðan læknisprófi 1935. Starfaði sem kandidat á sjúkrahúsum í Danmörku, en kom til Vestmannaeyja 1938 og stundaði almennar lækningar og var jafnframt aðstoðarlæknir við sjúkrahúsið þar. Var skipaður héraðslæknir í Súðavíkurhéraði 1957 og síðar í Bolungarvíkurhéraði. Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Erna maría dóttir Mads Peters vélstjóra í Kaupmannahöfn. Síðari kona hans er Guðbjörg Magnúsdóttir sjómanns í Bolungarvík.