Ólafur Árnason (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 16:29 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 16:29 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Árnason var sýslumaður í Vestmannaeyjum frá 1696 til 1722. Hann var fyrsti sýslumaðurinn sem var búsettur í Vestmannaeyjum. Ólafur bjó að Dölum ásamt fjölskyldu sinni. Foreldrar hans voru Árni Magnússon í Haga og Þóra Bergþórsdóttir. Hann varð fyrst lögsagnari í Vestmannaeyjum 1693 en var síðan skipaður sýslumaður árið 1696 og gegndi því embætti til æviloka. Hann hlaut viðurnefnið „klaki“ vegna þess hve hraustur hann var og harðger. Kona hans var Emerentiana Pétursdóttir og þau áttu þrjú börn Vilborgu, Björn og Valgerði.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.