Ólafur Á. Kristjánsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 09:36 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2005 kl. 09:36 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Á. Kristjánsson fæddist 12. ágúst 1909 að Garðastöðum í Vestmannaeyjum. Hann hét fullu nafni Ólafur Ágúst. Foreldrar hans voru Kristján Jónsson trésmíðameistari og Elín Oddsdóttir, bæði ættuð úr Fljótshlíð.

Hann stóðst próf frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1930 og var við trésmíðar í Vestmannaeyjum árin 1929-1933 og 1954-1963. Ólafur var byggingameistari í Vestmannaeyjum og teiknaði flest hús á tímabilinu 1930-60. Ásamt trésmíðum var hann vð verslunarstörf á árunum 1933-39 og í utgerð frá 1939 til 1947. Hann var bæjarstjóri í Vestmannaeyjum árin 1946-1954. Hann gegndi ýmsum störfum í Reykjavík eftir gos. Þar starfaði hann í Byggingarstofnun landbúnaðarins og var matsmaður Brunabótafélags Íslands og Veðdeildar Landsbankans.

Ólafur átti þrjár eiginkonur um ævina. Fyrsta kona hans hét Marie Albertine Friðriksdóttir Benónýssonar frá Gröf. Þau skildu. Önnur kona hans hét Jensína Finnbjörg Ólafsdóttir. Þau skildu. Þriðja kona Ólafs hét María Gíslína Björnsdóttir.


Heimildir:

Haraldur Guðnason. 1991. Við Ægisdyr, Saga Vestmannaeyja II. Reykjvík, Stofn. ISBN 00003056072