„Árni Stefánsson (Ási)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Bætt við greinina og löguð til.)
(Heimildir settar inn.)
Lína 6: Lína 6:


Afkomendur og frændur Árna gáfu Taflfélagi Vestmannaeyja taflbókasafn hans, sem var mikið að vöxtum og var gjöfin afhent félaginu vorið 1998.  
Afkomendur og frændur Árna gáfu Taflfélagi Vestmannaeyja taflbókasafn hans, sem var mikið að vöxtum og var gjöfin afhent félaginu vorið 1998.  
{{Heimildir|
*''Samantekt skrifaði [[Karl Gauti Hjaltason]]''
*''Mest efnið er úr grein e. Björn Ívar Karlsson eldri í Dagskrá 17. apríl 1998''





Útgáfa síðunnar 30. október 2007 kl. 00:11

Árni Stefánsson, póstmaður var félagsmaður í Taflfélagi Vestmannaeyja upp úr seinna stríði og tefldi m.a. með sveit félagsins á móti sveit Reykjavíkur 1945. Hann tók þátt nokkrum íslandsmótum á árunum 1944-1950.

Árni varð fyrsti Skákmeistari Vestmannaeyja 1958 og hélt titlinum einnig 1959. Hann sigraði m.a. Max Euwe fyrrverandi heimsmeistara í fjöltefli 1948. Hann fluttist seinna til Reykjavíkur og varð m.a. kunnur af því að semja skákdæmi sem birtust bæði í blöðum hér og í tímaritum erlendis. Árni var um tíma meðal fremstu skákmanna Reykjavíkur og stundaði talsvert bréfskák og var í bréfskáklandsliði Íslands í meira en 20 ár. Hann var einn af stofnendum tímaritsins Skák 1947 og stóð að útgáfu þess í tvö ár. Árni varð Bréfskákmeistari Íslands 1975, 1982 og 1983.

Árni fæddist 11. nóvember 1919 og lést 8. mars 1994. Hann var sonur hjónanna Stefáns Gíslasonar, útvegsbónda og konu hans Sigríðar Jónsdóttur. Kona Árna var Guðrún Sigurðardóttir. Sonur þeirra er Þorsteinn Árnason, bifreiðastjóri.

Afkomendur og frændur Árna gáfu Taflfélagi Vestmannaeyja taflbókasafn hans, sem var mikið að vöxtum og var gjöfin afhent félaginu vorið 1998.


{{Heimildir|

  • Samantekt skrifaði Karl Gauti Hjaltason
  • Mest efnið er úr grein e. Björn Ívar Karlsson eldri í Dagskrá 17. apríl 1998