„Árni J. Johnsen“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
The content of the new revision is missing or corrupted.
Lína 1: Lína 1:
''Sjá greinina um [[Árni Johnsen|Árna Johnsen]] fyrir Alþingismanninn.''


----
'''Árni Jóhannsson Johnsen''' fæddist í Vestmannaeyjum 13. október 1892 og lést árið 1963. Hann var sonur hjónanna [[Sigríður Árnadóttir|Sigríðar Árnadóttur]] og [[Jóhann Jörgen Johnsen|Jóhanns Jörgens Johnsen]] útvegsbónda og hótel- og [[Heilbrigðissaga Vestmannaeyja|sjúkrahúshaldara]] í Vestmannaeyjum. Fyrri kona Árna var [[Margrét Jónsdóttir]]. Eignuðust þau 6 börn, [[Svala Johnsen|Svölu]] húsfreyju í [[Suðurgarður|Suðurgarði]], [[Ingibjörg Johnsen|Ingibjörgu]] kaupkonu, [[Áslaug Johnsen|Áslaugu]] hjúkrunarkonu og trúboða, [[Gísli Johnsen|Gísla]] sjómann, [[Hlöðver Johnsen|Hlöðver]] bankafulltrúa og [[Sigfús Johnsen|Sigfús]] sem var kennari og formaður [[Eyverjar|ungra Sjálfstæðismanna]] í Vestmannaeyjum. Margrét lést eftir 30 ára sambúð þeirra. Seinni kona Árna var Olga Karlsdóttir. Þau eignuðust [[Guðfinnur Johnsen|Guðfinn]] og [[Jóhannes Johnsen|Jóhannes]] auk þess sem Olga átti fjögur börn fyrir.
Árni ólst upp á fjölmennu athafnaheimili. Faðir Árna hafði mörg járn í eldinum. Auk þess að halda hótel og sjúkrahús í Eyjum og einnig var á heimilinu bæði stunduð útgerð og landbúnaður.
Framan af stundaði Árni kaupmennsku, útgerð, búskap og margs konar umboðsstörf. Árni var félagslyndur og hjálpaði bágstöddum mikið. Árni var bindindismaður og var hann æðsti templari í stúkunni Sunnu samfleytt í 25 ár. Einnig var hann í forystusveit Sjálfstæðisflokksins um margra ára skeið. Árni var í fyrstu [[Lúðrasveit Vestmannaeyja]] og söng í kórum um 60 ára skeið.
Árni bjargaði alls 8 mönnum frá drukknum. Hann var sæmdur mörgum heiðursmerkjum og meðal annars fékk hann fjórum sinnum verðlaun úr Carnegie-sjóðnum og var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar.
{{Heimildir|
* ''Sjómannadagsblað Vestmannaeyja.'' 1963.}}
[[Flokkur:Fólk]]

Útgáfa síðunnar 15. ágúst 2006 kl. 13:46