Árni Diðriksson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 14:48 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2006 kl. 14:48 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Árni var bóndi og formaður í Stakkagerði en hann var frá Hólmi í Austur- Landeyjum. Bróðir hans var Þórður Diðriksson, sem var kunnur mormónatrúboði. Árni var merkisbóndi, hreppstjóri um skeið og flokksforingi í Herfylkingunni. Árni var kvæntur Ásdísi Jónsdóttur frá Berufirði. Dóttir þeirra hjóna var Jóhanna.

Árni Diðriksson hrapaði til bana í Stórhöfða árið 1903.


Heimildir

  • Þorsteinn E. Víglundsson. Blik, ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Maí 1962.