Hólshús

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. maí 2006 kl. 17:23 eftir Viktorpetur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. maí 2006 kl. 17:23 eftir Viktorpetur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Hólshús var oft kallað Kreml

Húsið Hólshús stendur við Bárustíg 9a og var byggt árið 1955. Það voru sósíalistar (síðar Alþýðubandalagið) sem byggðu húsið og var það í daglegu tali oft nefnt Kreml eftir höfuðstöðvum kommúnistaflokksins í Moskvu. Það skemmtilega er að orðið Kreml þýðir „húsið á hólnum“ þannig að merkingin er hárrétt þótt hún kynni að orka tvíræð.

Hólshús hefur hýst ýmsar verslanir og skrifstofur m.a. Eyjablóm, Foto, Listakot, Oddurinn, Gallerí Heimalist, Alþýðubandalagið, kosningaskrifstofur í syðri hluta og nú Listagallerí.

Eigendur og íbúar

  • Sóselistafélag Vestmannaeyja
  • Engilbert Jónasson
  • Ingi Engilbertsson
  • Guðbrandur Jónatansson og fjölskylda
  • Erla Halldórsdóttir og fjölskylda
  • Stígur Hannesson
  • Verslun Sigurbjargar Ólafsdóttur
  • Prentsmiðjan Eyjaprent til 1981

Heimildir

  • Bárustígur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.