Hólshús
Húsið Hólshús stendur við Bárustíg 9a og var byggt árið 1955. Það voru sósíalistar (síðar Alþýðubandalagið) sem byggðu húsið og var það í daglegu tali oft nefnt Kreml eftir höfuðstöðvum kommúnistaflokksins í Moskvu. Það skemmtilega er að orðið Kreml þýðir „húsið á hólnum“ þannig að merkingin er hárrétt þótt hún kynni að orka tvíræð.
Hólshús hefur hýst ýmsar verslanir og skrifstofur m.a. Eyjablóm, Foto, Listakot, Oddurinn, Gallerí Heimalist, Alþýðubandalagið, kosningaskrifstofur í syðri hluta og nú Listagallerí.
Eigendur og íbúar
- Sóselistafélag Vestmannaeyja
- Engilbert Jónasson
- Ingi Engilbertsson
- Guðbrandur Jónatansson og fjölskylda
- Erla Halldórsdóttir og fjölskylda
- Stígur Hannesson
- Verslun Sigurbjargar Ólafsdóttur
- Prentsmiðjan Eyjaprent til 1981