Ásgarður félagsheimili

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. janúar 2006 kl. 10:28 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. janúar 2006 kl. 10:28 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Nánari uppl. og tenglar)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Ásgarður stendur við Heimagötu 35. Neðri hæðin er nú félagsheimili sjálfstæðismanna en nafnið mun ekki hafa komið á húsið fyrr en þeir eignuðust það. Á efri hæð hússins eru tvær íbúðir.

Húsið, sem stendur á gatnamótum Heimagötu, Helgafellsbrautar, Austurvegar og Sólhlíðar, var byggt á sjöunda áratugnum og var í eigu Kaupfélags Vestmannaeyja. Þar var bæði rekin matvöruverslun og mjólkurbúð fram að gosi. Viðlagasjóður eignaðist húsið í gosinu, þar voru starfsmenn með aðstöðu fyrst eftir gos er unnu hjá Viðlagasjóði.

Knattspyrnufélagið Týr keypti húsið og leigði Bæjarfógetanum í Vestmannaeyjum hæðina, þar sem sjálfstæðismenn eru með aðstöðu sína. Bæjarfógetaembættið var í þessu húsnæði fram til ársins 1988 en þá keyptu sjálfstæðismenn það og þeir gáfu húsinu nafnið Ásgarður. ÍBV á enn kjallarann í húsinu og geymir þrettándadót sitt þar.