Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk
Fara í leit
- Í Eyjunum lífsgleðin ljómar
- er ljósbjört þar vornóttin skín,
- og lífsvakans aflmiklu ómar
- þeir ástfangnir berast til þín.
- Fuglarnir kliða við kletta
- og kafa í sædjúpin köld,
- en hafaldan lognværa létta
- sér leikur við þá í kvöld.
- Ég horfi á himininn loga
- hafið og spegilslétt sund,
- við heiðríkan himinsins boga
- á hrífandi góðviðrisstund.
- Já Eyjan mín brosið þitt bjarta
- og blíðan þín heillaði mig.
- Ég gaf þér strax hug minn og hjarta
- og hét því að elska þig.
- Lag: Sigurður Óskarsson
- Texti: Þorsteinn Lúther Jónsson