Kaupangur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. nóvember 2005 kl. 13:33 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. nóvember 2005 kl. 13:33 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Kaupangur stóð við Vestmannabraut 31, á horni Vestmannabrautar og Hilmisgötu. Magnús Th. Þórðarson, kaupmaður (Mangi Th.), rak verslun í húsinu en það þjónaði síðan ýmsum hlutverkum gegnum tíðina. Þar voru m.a. tannlæknastofa og lögfræðistofa en lengst af var þar rakarastofa þeirra Einars Þorsteinssonar og Ragnars Guðmundssonar. Kaupangur var rifinn skömmu eftir gos.