Brúarhús

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. nóvember 2005 kl. 13:18 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. nóvember 2005 kl. 13:18 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Brúarhús, einnig oft nefnt Hornið stóð við Vestmannabraut 1, á horni Vestmannabrautar og Heimagötu. Það var reist árið 1921 af Gunnari Marel Jónssyni skipasmið. Fjölskylda hans var löngum kennd við Hornið og er enn.