Kirkjubæjarbraut 8
Húsið við Kirkjubæjarbraut 8 var byggt árið 1950. Bílskúr var byggður við húsið árið 1986.
Sigfús Sveinsson og Guðrún Gissurardóttir byggðu húsið og bjuggur þar ásamt dóttur sinni Sigrúnu og tengdasyni Ásgeiri Ásmundssyni og börnum þeirra Birni og Guðrúnu þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973.
Heimildir
- Fasteignamat ríkisins, www.fmr.is.
- Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.