Einar Runólfsson (formaður)
Einar Runólfsson fæddist 25. desember 1918. Faðir hans var Runólfur Sigfússon.
Einar var formaður á Ísleif. Einar bjó á Fífilgötu 2.
Einar býr nú í Kópavogi.
Loftur Guðmundsson orti formannavísu um Einar:
- Einar af keppni æskumanns
- Ísleifi af hrönnum beitir
- aflasæld og heppni hans
- hróðurinn með réttu veitir.
Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Einar:
- Einar Runólfs reiðan sæ
- rennir lýð til bjargar,
- happa ferðir hefur æ
- hann á sjónum margar.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Breiðastan vigginn veiði
- veit ég með Sídons heiti.
- Einar ég glöggan greini
- getinn Runólfi metinn.
- Færir bússuna bæru,
- buðlungur rastar, slunginn
- banka á hyljung hankar
- höldurinn frægur öldu.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.