Bókabúðin
Húsið Bókabúðin er við Kirkjuveg 12. Nafngiftin Bókabúðin er tilkomin vegna þess að Þorsteinn Johnson var með bókabúð í húsinu um árabil.Talið er að húsið hafi verið byggt árið 1906. Sennilega er húsið að stofni til viðbygging við Jómsborg en síðan flutt á Kirkjuveg árið 1926. Árið 1934 var það flutt yfir götuna og stækkað árið 1954 í vestur.
Húsið var áður kallað Gata og var tómthús. Áður fyrr geymdi hreppurinn þurfalinga sína þar.
Í húsinu var fyrst rekin skóbúð, en í október árið 1926 opnar Þorsteinn Johnson þar bókabúð. Óskar Þorsteinsson, sonur Þorsteins, tekur síðan við bókabúðinni fram að gosi.
Eftir gos hefur ýmis starfsemi verið í húsinu; reiðhjólaverkstæði og harðfiskverkunin Eyjafiskur. Nú er í húsinu listaverkaverslunin Gallerý Prýði og trésmíðaverkstæðið Börkur í eigu hjónanna Róberts Sigmundssonar og Svanhildar Gísladóttur.
Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu
- Þorsteinn Johnson
- Óskar Þorsteinsson
- Róbert Sigurmundsson og Svanhildur Gísladóttir
Heimildir
- Heimagata. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.