Nemendafélag Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum
Um félagið
Við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum er starfrækt nemendafélag. Það heitir Nemendafélag Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, skammstafað NFFÍV. Félagar eru nemendur sem greiða félagsgjöld sem ákveðin eru ár hvert í byrjun hverrar annar. Vefsíða félagsins er eyjar.net/nemo
Tilgangur félagsins
- Að gæta hagsmuna nemenda gagnvart skólayfirvöldum og ráðuneyti og virkja nemendur til baráttu fyrir hagsmunum sínum.
- Skipuleggja félagsstarfsemi undir merkjum skólans og styðja við bakið á annarri félagsstarfsemi eftir föngum.
- Vinna að góðri ímynd Framhaldsskólans á sem flestum sviðum
Um kjör og stjórnskipan
Í stjórn NFFÍV er kosið í lok apríl ár hvert. Kjosið er um formann, varaformann og gjaldkera og er það grunnstjórn félagsins. Grunnstjórnin velur svo með sér þrjá meðstjórnendur. Þeir eru fjölmiðlafulltrúi, íþróttafulltrúi og nýneminn (businn). Á stjórnarfundum hefur hver aðili í grunnstjórn tvöfaldan atkvæðisrétt, en meðstjórnendur hafa hver um sig einfaldan. Samtals 9 atkvæði.
Til að vera kjörgengur til..
.. formanns eða varaformanns þarf nemandi að hafa lokið 3 önnum við skólann eða vera á 18. aldursári
.. gjaldkera þarf nemandi að hafa lokið einni önn við skólann eða vera á 17. aldursári
Formaður NFFÍV er sjálfkrafa fulltrúi í Skólanefnd og Skólaráði. Varaformaður er varamaður hans. Stjórn NFFÍV skal sjá til þess að starfrækt verði vefnefnd innan skólans sem sjái um að halda úti heimasíðu NFFÍV. Stjórn NFFÍV skipar fjölmiðlafulltrúa sem er ritstjóri vefsíðu og blaðaútgáfu félagsins.
Stjórn NFFÍV skal sjá til þess að starfrækt verði íþróttanefnd innan skólans sem skal sjá um að koma á sterkri og fjölþættri íþróttastarfsemi í skólanum. Stjórn NFFÍV skipar íþróttafulltrúa sem sér um skipulagningu slíkra atburða.
Stjórn NFFÍV
Veturinn 2007-2008
- Haraldur Pálsson Formaður
- Kristinn E. Árnason varaformaður og ritari
- Bragi Magnússon gjaldkeri
- Sara Sjöfn Grettisdóttir fjölmiðlafulltrúi
- Sara Dögg Guðjónsdóttir íþróttafulltrúi
- Bjartey Ingibergsdóttir nýnemi (busi)
Fyrri stjórnir
Helstu föstu þættirnir í starfi nemendafélagsins eru:
- Busavígsla í upphafi haustannar
- Busaball í upphafi haustannar
- FÍV cup á haustönn
- Prufur fyrir öflugt spurningalið fyrir Gettu Betur á haustönn
- Fótboltamót KSÍ milli framhaldsskóla
- Lokaball á haust og vorönn
- Ýmis mót, eins og spilamót, fótboltaspilsmót, borðtennismót, mottukeppni og fleirra..
- Opin vika á vorönn
- Árshátíð nemendafélagsins á vorönn
- Íþróttadagurinn á vorönn
- Auk þessara þátta sér nemendafélagið um margs konar uppákomur á skólaárinu.
Félagsmálafulltrúi og forvarnafulltrúi starfa náið með Nemendafélaginu.