Þorsteinn Gíslason (Görðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. júlí 2012 kl. 08:23 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. júlí 2012 kl. 08:23 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þorsteinn

Þorsteinn Kristinn Gíslason, Görðum, fæddist á Eskifirði 5. maí 1902 og lést 25. maí 1971. Þorsteinn fluttist alfarið til Vestmannaeyja 1919 og það sama ár hóf hann sjómennsku hjá Eyjólfi Gíslasyni bróður sínum á Garðari I. Formennsku hóf Þorsteinn árið 1928 á Garðari II. Eftir það var Þorsteinn með Sjöfn I og Sjöfn II sem voru hans eigin bátar.

Eiginkona hans var Guðrún Lilja Ólafsdóttir og bjuggu þau í Arnarfelli við Skólaveg. Þau eignuðust 6 börn, öll fædd í Vestmannaeyjum:

  • Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 6. ágúst 1931
  • Gísli Guðni Þorsteinsson, f. 14. september 1932, d. í júní 1933
  • Erna Þorsteinsdóttir, f. 18. ágúst 1936. d. 2. janúar 2012
  • Hulda Þorsteinsdóttir, f. 17. febrúar 1940.
  • Þorsteinn Gísli Þorsteinsson, f. 22. nóvember 1943.
  • Ólafur Diðrik Þorsteinsson, f. 14. janúar 1951. d. 11. október 1997


Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Þorstein:

Harðskiptinn við dimma dröfn
djarfur á þorskaleiðum,
Þorsteinn Gíslason á Sjöfn
sækir fast að veiðum.

Óskar Kárason samdi einnig formannavísu um Þorstein:

Garpur afla Görðum frá
geymir Steina heiti,
telja má í svæsnum sjá
Sjafnar kinnar bleyti.

Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:

Steina Gísla ég greini
gætinn í formanns sæti,
svikalaust sjós í kviku,
Sjöfn stýrir þétt úr höfnu.
Friðar lítt meiri miðin,
marinn þó velti fari,
dýrugga dyns úr mýri
dregur úr sjó ótregur.

Myndir



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.