Pétur Ágústsson
Pétur Ágústsson fæddur þ. 6.2.1929 á Berufjarðarströnd, S-Múl. Hann ólst upp í foreldrahúsum á Fáskrúðsfirði. Pétur var sjómaður frá unga aldri. Hann lærði síðan múrverk og starfaði við það megnið af starfsæfinni. Eiginkona Péturs var Guðrún Kristjánsdóttir frá Stað. Þau hjón byggðu sér hús að Helgafellsbraut 27. Pétur lést þ. 8.6.1999.