Fagrabrekka
Húsið Fagrabrekka er við Vestmannabraut 68. Það var reist árið 1915 af Ársæli Sveinssyni útgerðarmanni og stóð um tíma eitt stakt í fallegri brekkunni. Árið 2006 bjó í húsinu Laufey Sigurðardóttir og Gunnar Einarsson Jónssonar ásamt börnum sínum Sigurði Birni Oddgeirssyni, Hjörvari Gunnarssyni og Guðrúnu Lilju Gunnarsdóttur.
Heimildir
- Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.