Staður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. ágúst 2011 kl. 10:04 eftir Kristjanp (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. ágúst 2011 kl. 10:04 eftir Kristjanp (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Staður stóð við Helgafellsbraut 10

Stað byggðu hjónin Kristján Egilsson, fæddur 1884 í Miðey, Voðmúlastaðasókn, Rang. og Sigurbjörg Sigurðardóttir, fædd 1895 í Kirkjulandshjáleigu, Landeyjum. Þau bjuggu þar allan sinn búskap. Börn þeirra: Bernótus, Símon, Egill, Guðrún og Emma. Systkinin fæddust öll í húsinu. Staður var rifinn 1974.


Húsið Staður stóð við Helgafellsbraut 10 og þar bjuggu hjónin Pálmi Pétursson og Birna Björgvinsdóttir og börn þeirra Björgvin, Karlotta og Guðrún Sólveig þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973.



Heimildir

  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.

  • Kristján Pétursson